jump to navigation

Páskafrí! Wednesday 29 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Skóli.
add a comment

Ég er kominn í fjögurra vikna langt páskafrí eftir að kúrsinn sem ég tók í blokk 3 kláraðist í gær. Honum lauk með því að nemendur kynntu hópverkefni sem voru unnin síðustu tvær vikurnar og eftir það fékk ég að vita að ég hefði fengið “bestået” (eins og raunar allir hinir). Hina mögulegu einkunnina getið þið sennilega giskað á. Svo nú skal skrifað um gammablossa, forritað í C, orkestrerað, sungið og þeyttur lúður næstu vikurnar!

Ég lýsi yfir sumri (gildir bara í Danmörku)! Saturday 25 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Á morgun skiptir Danmörk yfir í sumartíma og allir tapa einum klukkutíma. En það verður allt í lagi því frá og með deginum í dag er veðrið hér skilgreint (af mér) sem dæmigert sumarveður, hlýtt og notalegt. Og ef DMI hefur eitthvað við þessa skilgreiningu að athuga (eða halda því fram að hún stangist á við mælingar) þá skal þeim hér með bent á að hitastig er afstætt og ef maður passar sig bara að vera svalur hlýtur manni að verða hlýtt! Eg hefi talað!

Nú á ég stjörnukíki! Friday 24 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Staka.
add a comment

Í gær lét ég endanlega undan freistingunni og stökk á stjörnukíkistilboðið sem ég sagði frá í færslu hér fyrir neðan. Nú er kassi með ósamansettum 76mm stjörnukíki á rúminu mínu og ég er byrjaður að grúska í leiðbeiningunum um hvernig á að fara að því að setja hann saman. Skrúfa skrúfa! Ég hef sennilega um það bil viku til að koma honum saman áður en aðstæður verða næst góðar til að prófa hann. Þetta verður (eins og lesendur geta trúlega giskað á) alveg SVAKALEGA gaman!

Í kvöld verður sameiginleg árshátíð Stöku og kirkjukórsins hér í Køben haldin með miklum tilþrifum á Øresundskollegíinu. Stuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuð!!!!!!!!!

Ha ha! Thursday 23 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Bull.
add a comment

Ég var að fá sendan bækling frá Albertslund Kommune þar sem þeir bjóða upp á dönskunámskeið fyrir útlendinga. Í bæklingnum kemur fram að það sé vegna þess að þeir vilji integrera mig! Það kemur þó ekki fram með tilliti til hvaða breytu eða yfir hvaða bil…

En þetta útskýrir hvað er í gangi í löndum sem lenda í vandræðum með innflytjendur; þar kunna menn bara ekki að integrera!

Var að skila Skattmann! Monday 20 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Sko mig, ég þurfti ekki einu sinni frest til að skila! Bara búinn og síðasti dagur til að skila ekki fyrr en á morgun! Það var nú ágætt, þá er hættan á að gleyma þessu yfirstaðin í ár:P

En það er ekki þar með sagt að hægt sé að slaka á. Ónei, það er bara næsta skítverk sem er að moka út úr eldhúsinu hér. Það er semsagt mín vika að þrífa eldhúsið sem alltaf lítur út eins og eftir napalmsprengjuárás eða eitthvað þaðan af verra. Hér (og þetta þótti mér all merkilegt að uppgötva) gengur nefnilega rúmlega annar hver maður talsvert verr um en ég. Grrrrr…

Þjófstolið efni!! Sunday 19 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Bull.
add a comment

Og það a.m.k. tvístolið! Ég rændi þessu frá Hildigunni sem fann það einhversstaðar annarsstaðar en það er langt síðan og þetta þolir vel endurtekningu:

The Washington Post’s Style Invitational once again asked readers to take any word from the dictionary, alter it by adding, subtracting, or changing one letter, and supply a new definition. Here are this year’s (2003) winners:

Bozone (n.): The substance surrounding stupid people that stops bright ideas from penetrating. The bozone layer, unfortunately, shows little sign of breaking down in the near future.

Intaxication: Euphoria at getting a tax refund, which lasts until you realize it was your money to start with.

Reintarnation: Coming back to life as a hillbilly.

Cashtration (n.): The act of buying a house, which renders the subject financially impotent for an indefinite period.

Giraffiti: Vandalism spray painted very, very high.

Sarchasm: The gulf between the author of sarcastic wit and the person who doesn’t get it.

Inoculatte: To take coffee intravenously when you are running late.

Hipatitis: Terminal coolness.

Osteopornosis: A degenerate disease. (This one got extra credit.)

Karmageddon: It’s like, when everybody is sending off all these really bad vibes, right? And then, like, the Earth explodes and it’s like, a serious bummer.

Decafalon (n.): The grueling event of getting through the day consuming only things that are good for you.

Dopeler effect: The tendency of stupid ideas to seem smarter when they come at you rapidly.

Arachnoleptic fit (n.): The frantic dance performed just after you’ve accidentally walked through a spider web.

Beelzebug (n.): Satan in the form of a mosquito that gets into your bedroom at three in the morning and cannot be cast out.

Caterpallor (n.): The color you turn after finding half a grub in the fruit you’re eating.

And the pick of the literature:

Ignoranus: A person who’s both stupid and an asshole.

Steikta kommentakerfi! Thursday 16 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Komment.
add a comment

Kommentakerfið mitt hefur ákveðið að talan 5 (fimm) sé ekki til, og hér eftir verði talið 1,2,3,4,6,7,8,9,… A.m.k. ef marka má síðustu tvær færslur. Það verður forvitnilegt að sjá hvort það vill líka hlaupa yfir þær tölur sem innihalda 5 og þær tölur sem 5 gengur upp í. Eins og í þeim merka leik Búmm! Kannski kerfið sé að spila 5Búmm! við einhvern, hvað veit ég svo sem?

Fyddst ‘ér ‘etta kaddski fyddid?… Wednesday 15 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Bull.
add a comment

…sagði stóri grái (gáfaði) fíllinn þegar Herra Rugli (sem var hættur að vera ruglaður og orðinn mjög klár) batt hnút á ranann á honum (til að sýna svarið við gátunni: Hvað er stórt, grátt og segir ættu, ættu!?). Þetta sagði hann að sjálfsögðu eftir að hann sagði ættu, ættu! Og hvað með það segir kannski einhver? Jú, ég hef talað afar svipað þessum skemmtilega fíl undanfarna daga. Það hefur að vísu enginn bundið hnút á nefið á mér en það fer ekki mikið loft í gegnum það samt. Þessvegna ætla ég núna að fara upp í rúm og lesa Hitchikers Guide og hlæja nefmæltum hlátri. Góda dótt!

Freistingar! Tuesday 14 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Ég veit ekki hvað er að koma yfir mig, það hefur hellst yfir mig einhver ógurleg þörf fyrir að eyða peningum (hvaðan sem ég ætti nú að hafa þá!?!) í græjur. Bara í dag rak ég augun í GSM síma á 400 DKK (og annan á 1800 DKK!), geislaspilara (ghettoblaster) á 800 DKK og stóran stjörnukíki (mest freistandi af þessu öllu saman) á 700 DKK! Ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda hvað myndi gerast ef ég færi að láta undan einhverjum af þessum freistingum, ég væri trúlega fljótur á hausinn. Og ég hef ekki einu sinni litið inn í geisladiskabúð í nokkra daga, freistingarnar þar eru enn erfiðari!

Standa fast á bremsunni, setja lás á veskið og setja kreditkortið í plastpoka í vatnsfötu sem geymd er í frysti. Held það sé eina vitið!

Sko til, annað bloggið í dag Monday 13 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.
add a comment

Ég er bara búinn að vera nokkuð aktívur í dag miðað við það sem stefndi í í morgun. Ég er búinn að skrifa eitt C forrit (sem krassaði ekki öllu netsambandi, símasambandi, rafmagni, olíudreifingu og reiðhjólum í Danmörku! Húrra fyrir mér!) og lesa allnokkuð um það hvernig maður fer að því að skrifa slík kvikindi án þess að fjandinn verði laus. Raunar vantar mig aðallega góða kennslubók, mér skilst að á netinu eigi að vera hægt að nálgast nokkrar svoleiðis ókeypis (að útprentun frátalinni auðvitað) frá einhverjum háskólaprófessorum með Open Source æði en ég hef ekki fundið neitt sem hentar mér ennþá. Allar tillögur vel þegnar.

Spurning: Hvað er langt, gult og fullkomið?
Svar: Bananach-rúm!

Slappur, latur ofl. Monday 13 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Það er merkilegt hvað kvef og hálsbólga geta gert mann latann. Ég nenni engu í dag (er svo sem þannig séð í lagi því ég á frí í dag) nema hanga í tölvunni. Ég geri kannski eitthvað af viti seinna í dag, það kemur bara í ljós. Ástandið er þó betra en í gær þegar einnig var boðið upp á hita, hausverk og beinverki af bestu gerð auk almenns svekkelsis (skilgreinum almennt svekkelsi…). En ég nenni ekki að kvarta og kveina meira, það er leiðinlegt.

Vissuð þið að líkurnar á því að maður geti skammtasmogið í gegnum hurð án þess að skemma hurðina (eða sjálfan sig!) eru af svipaðri stærðargráðu og líkurnar á því að hvirfilbylur fari í gegnum ruslahaug og smíði Boeing 747? Að því gefnu að í ruslahaugnum sé nægilega mikið af þeim efnum sem þarf í smíðina…

Skelfilegur tónverkur! Saturday 11 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.
add a comment

Það verður partý í blokkinni í kvöld og sumir, þar á meðal geislaspilarinn, eru þegar komnir í gang. Það væri ekki svo slæmt ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þeir sem stjórna geislaspilaranum hér á bæ hafa alveg hræðilegan smekk. Alveg Hræðilegan Smekk!! ALVEG HRÆÐILEGAN SMEKK!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Ég er að reyna að lesa greinar og á meðan þrumar Barbie Girl (og annað í svipuðum gæðaflokki) úr græjunum frammi á gangi. Það er ekki hávaðinn sem truflar mig, ég þoli hann alveg ágætlega enda þaulvanur að framkalla hávaða sjálfur með lúðrablæstri. Hvernig getur fólk hlustað á þetta, ég bara spyr?

Hefst nú lesturinn… Thursday 9 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Skóli.
add a comment

Ég var að ljúka við að prenta út helling af gammablossagreinum til að lesa fyrir verkefnið mitt, nú er bara að sjá hvort ég næ einhverntíma að lesa þetta allt saman! Planið er að lesa helling af greinum í mars til að velja hvaða módel ég ætla að prófa í apríl og maí.

Og prentarinn svínvirkar, þetta var fyrsta stóra prófið hans og hann fór létt með það. En nú heyrist mér stóri bunkinn sem ég var að prenta vera farinn að hlægja að mér, hann heldur að ég nái aldrei að lesa allt saman! Ég skal sko sýna honum…

Sko, nú er ég orðinn alvöru vísindamaður Tuesday 7 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Skóli.
add a comment

Nú er komið að miklum tímamótum hjá mér: Í fyrsta skipti á námsferlinum fæ ég kontór (lesist skrifborð og hilla úti í horni í fjögurra manna herbergi) til að vinna að rannsóknarverkefni. Það sem eftir er vetrar (og vonandi næsta vetur líka í mastersverkefninu) mun ég hafa aðsetur á DARK Cosmology Center (You don’t know the power of the DARK side!) í Rockefeller byggingu Kaupmannahafnarháskóla þar sem ég mun rannsaka röntgenskot frá gammablossum! Raunar er ég ekki búinn að fá aðstöðuna ennþá en það gerist víst í næstu viku. Nú þarf ég ekki að þvælast um með allt draslið mitt fram og til baka á hverjum degi heldur get ég geymt það á þeim stað þar sem það er í notkun. Snilld!

Mér dettur ekkert í hug… Saturday 4 March, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Fréttir.
add a comment

Um hvað skrifar maður þegar maður er hugmyndalaus? Þetta er ljóta ástandið, ég hef álíka margar hugmyndir um hvað ég eigi að skrifa og ég hef yfirleitt þegar ég leita að jólagjöfum. Núll! Þetta er ekki gott ástand. Raunar er þetta kannski ekki svo skrýtið því það er í raun frekar lítið að gerast þessa dagana, helst að það sé merkilegt hvað það er mikill vetur hér, snjóar upp á hvern einasta dag.

Jú, annars; sandalarnir mínir eru að hrynja í sundur. Þeir eru átta ára gamlir og kostuðu 200 krónur (íslenskar) í Portúgal. Fleira er ekki í fréttum…