Brennið þið vitar… Friday 28 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Tónlist.add a comment
Nú er ég búinn að prófa að syngja með karlakór, meira að segja kór orgelnema við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium sem vantaði nokkra Íslendinga til að æpa textann í Brennið þið vitar upp í dönsk eyru. Þetta lag er bara snilld og ég vil ekki heyra nein mótmæli;) Allir orgelnördarnir voru yfir sig hrifnir og dúndruðu á 100 desibelum eins og þetta lag á að vera.
Og ÞRÁÁÁÁÁÁÁÁiiiiiiiir höfn!!!!
Stuð!
Ha, skóli? Monday 24 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Golf, Skóli.add a comment
Blokk fjögur byrjar í dag og allt í einu þarf ég að fara að mæta í skólann aftur eftir fjögurra vikna afslöppun (lesist: LETI). Ég ætla að taka kúrs um stjörnumyndun og svo er ég raunar enn að velta fyrir mér hvort ég ætla að taka kúrs um plánetueðlisfræði eða um “Quantum Optics and Quantum Information”. Ég ætla að kíkja á þennan kvantakúrs í dag og sjá hvernig mér líst á. Ef hann er spennandi þá tek ég hann frekar, ég held að hann sé meiri “alvöru” masterskúrs, það gæti verið vesen að fá hinn samþykktan. Það er ekki útilokað að þetta verði síðustu tveir kúrsarnir sem ég tek, eftir þetta verða kannski bara rannsóknarverkefni!
Ég er að verða galinn af golfskorti, hef ekki komist ennþá en það fer að styttast í að ég drífi mig bara hvort sem ég kemst eða ekki:P FORE!!!
Ekkert golf í dag:( Friday 21 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Golf, Skóli.add a comment
Ég endaði á að fara ekkert í golf í dag, ég þurfti eiginlega að gera meira í verkefninu mínu og svo var rigning. Þið megið alveg ráða hvora ástæðuna þið teljið hafa haft meiri áhrif en lokaniðurstaðan er sú sama. Það styttist þó óðum í að hafnar verði barsmíðar ægilegar, mér til skemmtunar og golfboltunum mínum til skelfingar! Bwahahahahahaha!!!!!
Ég hlakka til á morgun…
Og gleðilegt sumar! Thursday 20 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Golf, Tónlist.add a comment
Það stendur nú ekki til að breyta þessari síðu í svona tyllidagablogg þar sem ekkert gerist nema við sérstök tækifæri en hér kemur samt sumarkveðja. Það er ágætis tilbreyting að vera einu sinni í sumarveðri á sumardaginn fyrsta en ekki hagléli eins og ég man að byrjaði einu sinni í þriðja takti af “Ó blessuð vertu sumarsól”!
Það er verst hvað svona veður hefur slæm áhrif á einbeitingu…
Ég ætla í golf á morgun, hér verður gefin nákvæm skýrsla eins og vera ber!
Gleðilega páska! Sunday 16 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.add a comment
Haldið þið ekki að lambalæri sem er eldað á meðan kokkurinn hlustar á Alpasinfóníuna verði svakalega gott, svona Alpalamb? Það hlýtur að vera…
Gleðilega páska:)
Löööööööööööööööööööööööööööööööööööööng tónverk Thursday 13 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Tónlist.add a comment
Í gær fórum við Guðný að hlusta á Matteusarpassíuna í Holmens Kirke. Flutningurinn var frábær, sérstaklega kórinn, auk þess sem tvö af sólistunum (altinn og annar bassinn (sá sem söng Pílatus, Júdas og bassa almennt)) voru hreint út sagt stórkostleg, að öðrum ólöstuðum. Þetta glæsilega verk er ekki oft flutt, annarsvegar vegna þess að það er afar stórt í sniðum (tveir kórar og barnakór, hljómsveit og fullt af einsöngvurum) og því dýrt, en hins vegar vegna þess hvað það er langt (vel yfir þrír tímar). Það þykja mér alltaf jafn undarleg rök gegn því að flytja verk að það sé of langt. Eða réttara sagt þá finnst mér alltaf jafn undarlegt að það að verk sé langt komi í veg fyrir að fólk mæti til að hlusta (sem er svo aftur notað sem rök gegn því að flytja verkið). Ef tónlistin er góð og vel flutt þá heldur hún athygli manns eins lengi og þarf, hvort sem verkið er fimm mínútur eða fimm tímar, og það varð ég áþreifanlega var við í gær. Ef ég hefði ekki vitað fyrir að verkið væri svona langt þá hefði ég giskað á (eftir tónleikana) að það hefði tekið um einn og hálfan tíma. Ég hefði alveg getað tekið annan eins skammt eftir kannski hálftíma hlé. Vissulega reynir það á flytjendur að halda áfram svona lengi en það er langt frá því að vera óyfirstíganlegt. Mér finnst alveg ferlegt þegar glæsileg verk eins og t.d. Messías eru tekin og stytt bara til þess að hafa tónleikana tvo og hálfan tíma en ekki þrjá, hvað þá þau hræðilegu skemmdarverk að taka sjálfan Niflungahringinn og stytta niður í eina þriggja tíma sýningu (úr fjórum sýningum sem eru fimmtán tímar samtals!). Þegar ég les gagnrýni á ný verk finnst mér koma oftar og oftar fyrir að gagnrýnandinn segir að verkið hafi nú verið að mörgu leyti mjög gott og skemmtilegt áheyrnar en bara of langt. Þetta hef ég lesið um verk alveg niður í fimmtán mínútur. Hvað ætli fólk myndi segja ef einhver tæki upp á því að semja verk í Niflungahringslengd núna, jafn vel gert, jafn gríðarlega mögnuð tónsmíð sem heldur manni föstum allan tímann, og jafn langt? Fyrst það er kvartað yfir fimmtán til tuttugu mínútum er eins víst að maður yrði settur í svartholið fyrir fimmtán tíma! Mahler og Bruckner sömdu stórkostlegar sinfóníur þar sem einn kafli (oft af fimm) gat nálgast hálftíma. Hvaða viðtökur fengju þær sinfóníur sem ný verk í dag?
Er kannski bara orðið svona almennt að hafa svona hrikalega stutt “attention span” (hvað heitir það á íslensku eiginlega?)?
Ps. Og ég hef ekkert á móti stuttum tónverkum, ekki halda það. Mér finnst bara undarlegt að það skuli nánast þykja frágangssök að verk sé lengra en einhver tiltekinn mínútufjöldi. Það að fara á tónleika (eða í óperuna) tekur tíma og það er einmitt galdurinn við tónlist, að leyfa sér að slaka á og sleppa stressinu og tímapressunni sem tekur við aftur þegar hún er búin.
Pps. Það skal tekið fram að ég veit alveg af því að stór og löng verk eru dýr í flutningi (það er einfaldlega ekki það sem ég er að tala um), það sem mér finnst furðulegt er að fólk skuli vera svona tregt til að mæta, oft út af lengdinni einni, þegar einhver splæsir í að flytja þau. Og já, ég veit að lengdin er ekki það eina sem (sumt) fólk hikar við þegar Wagner á í hlut:)
Þetta var undarlegt!?!?!?! Tuesday 11 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Bull.add a comment

G# minor – You are not totally happy, and you know it. At least you are trying to do something about it. You like to think and create to try and sort out your problems. Keep going the way you are, and you will soon be on speaking terms with your demons.
Hvaða vitleysa, það er allt í fínasta lagi hjá mér! Og ef ég þarf einhverntíma að spila í g#moll þá er eins víst að ég umskrifi allt saman yfir í a♭moll. Miklu þægilegra (finnst mér)!
Páskaegg eru góð! Sunday 9 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.add a comment
Og þau eru sérstaklega góð þegar maður gerði ekki ráð fyrir að finna þau. Ég átti ekki von á að komast yfir íslensk páskaegg í Danmörku en nú eru tvö stykki á borðinu fyrir framan mig! Nammnamm:P
Gargandi snilld (sem endar aldrei…)! Saturday 8 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Tónlist.add a comment
Ég var að kaupa mér snilldar geisladiskapakka, Richard Strauss á 100 DKK. Raunar ekki heildarsafn en listinn er mjög flottur:
Vier letzte Lieder
Orchesterlieder
Also sprach Zarathustra (auðvitað!)
Metamorphosen
Eine Alpensinfonie
Don Juan
Tod und Verklärung
Die Frau ohne Schatten
Allt saman upptökur með Hollenskum hljómsveitum og mjög vel spilað, a.m.k. það sem ég er búinn að hlusta á. Og þeir kunna sko að dúndra í Hollandi! Ég hugsa að Alpasinfónían myndi brjóta rúður ef maður stillti hana í botn í almennilegum græjum! Hvað segirðu Stefán, á ég að brenna handa þér eintak af þessu;)?
Persónur og leikendur: Viðauki: Wednesday 5 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir.add a comment
Ef maður væri í óperunni og allt í einu birtist ný persóna á sviðinu án nokkurrar kynningar og án þess að hennar væri getið í prógrammi yrði maður sennilega dálítið ruglaður. Maður gæti haldið að tónskáldið (eða líbrettistinn, eða bæði/báðir/báðar) hefði skyndilega ákveðið að breyta söguþræðinum aðeins á síðustu stundu, nú eða þá að prógrammið væri bara illa unnið. Nú ætla ég ekki að fara að skrifa óperulíbrettó upp úr veru minni hér í Köben (hún fengist aldrei sett upp, allt of mikið af nördaskap:P) en því verður ekki neitað að þessi síða gegnir að sumu leyti hlutverki prógramms fyrir þá sem vilja fylgjast með því hvað ég er að gera. Því þykir mér orðið nauðsynlegt að hér sé kynnt til sögunnar ný aðalpersóna sem hefur haft mikil áhrif á söguþráðinn frá því hún kom inn á svið fyrir nokkru síðan; kærastan mín, Guðný Einarsdóttir. Hún er sætust, best og skemmtilegust í heimi (kemur lesendum sennilega ekki mikið á óvart:P) og alveg magnaður organisti. Þar hafið þið það:)
Kominn aftur í siðmenninguna Monday 3 April, 2006
Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Staka.add a comment
Ég er sko ekkert í fjögurra vikna páskabloggfríi ef einhver skyldi hafa haldið það, ég var bara úti í sveit um helgina, nánar til tekið í Århus (prófið að þýða hvorn part orðsins fyrir sig og veltið svo fyrir ykkur hvernig þýðingin Árósar gat eiginlega orðið til!?!). Þar hafði ég hvorki aðgang að neti né sturtu og svaf í herbergi með engum rafljósum! Því fékk blogg að bíða þar til ég komst aftur til mannabyggða. Í Århus var Staka í æfingabúðum og söng af miklum móð, bæði á æfingum og á barnum á eftir. Æfingahelginni lauk með tónleikum þar sem fjöldi áheyrenda var slétt prímtala í öðru veldi, á þeim söng kórinn sumt vel en annað lakar eins og gerist. Það er þó alveg ljóst að æfingarnar yfir helgina höfðu skilað sér því sumt hefðum við ekki einu sinni getað komist í gegn um áður. Mér sýnist að allt stefni í flotta tónleika seinna í vor.