jump to navigation

Ég hlakka til! Wednesday 27 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Skóli.
add a comment

Í dag eru tvær vikur þar til ég fer til Parísar:) Ég er búinn að telja niður frá því ég pantaði farið og er orðinn frekar spenntur! Meðal þeirra staða sem stendur til að heimsækja eru górillusýning á Champs Élysses (hvernig sem á nú að skrifa það…) og thaílenskur veitingastaður sem selur sæskrímslasúpu.

Af verkefninu er það að frétta að ég er að verða búinn að læra á forritið sem ég þarf að nota en hef þurft að gera allt í minni tölvu hingað til því tölvurnar í vinnuherberginu sem ég hef aðstöðu í eru í svo algjöru rugli að það er ekki einusinni hægt að logga sig inn. Þetta hefst upp úr því að nota Machintosh í alvöru tölvuvinnu…

Áfram Linux!

Bráðnauðsynlegt tól á hverju heimili… Friday 22 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Trompet.
add a comment

Hvað er það? Jú, það er stór þvottabali. Og til hvurs? Nú til að setja óhreina trompeta í bað.

Ég þarf að fara að versla…

Stolnir óbókonsertar… Monday 18 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Trompet, Tónlist.
add a comment

Það er merkilegt hvað trompetleikarar hafa gaman af því að ræna verkum frá óbóleikurum og spila þau á trompet. Ég er að æfa eitt slíkt núna, konsert í d-moll eftir Albinoni. Það eru ekki svo mörg tækifærin sem maður hefur til að spila tónlist frá þessum tíma í moll, einfaldlega vegna þess að hljóðfærið réð ekki við það.

Það er gott að eiga lasagna frá því í gær í ísskápnum þegar maður er búinn að fara út að hlaupa:)

Eg hefi unnið frækinn sigur! Friday 15 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Skóli.
add a comment

Eftir þriggja daga baráttu hefur mér tekist að setja upp á tölvunni minni allt það skemmtilega dót sem þarf til að fá einhvern botn í mæligögn frá Swift gervitunglinu, hvers hlutverk það er að nema gammablossa og fylgjast með þeim af mikilli nákvæmni. Þetta kostaði mikið brölt í Linux, loggaður inn sem root, en það getur haft afar skrautlegar afleiðingar ef maður gerir eitthvað vitlaust. Það gerði ég ekki svo tölvan mín er enn á lífi! Til dæmis skrifaði ég ekki rm -rf neðst í filesysteminu eins og ákveðinn íslenskur stjarneðlisfræðingur afrekaði fyrir nokkrum árum…

Sko mig! Thursday 14 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Skóli.
add a comment

Nú get ég virkilega verið góður með mig (á nördalegan hátt!). Ég er kominn með alvöru mastersnemavinnuaðstöðu og á skrifborðinu mínu eru ekki ein heldur tvær tölvur! Nú get ég þóst vera alvöru hakker (eins og í bíó) sem hamrar á lyklaborð á ofsahraða á meðan þrívíddarmyndir gerðar í Mathematica snúast á mörgum skjám í einu! Og svo opnast allt í einu systemið sem verið er að hakka og við það renna allar þrívíddarmyndirnar saman í eina heild. Hollywood hefur aldrei verið þekkt fyrir mikla nákvæmni…

Ég er að fara til Parísar, ekki þú;) Monday 11 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir.
add a comment

Þann 11. október klukkan 7:35 að staðartíma (geisp) mun ég leggja af stað til Parísar að heimsækja Guðnýju:) Danir eru nefnilega svo sniðugir að þeir hafa svonefnt haustfrí sem er eins og sérhannað fyrir þá sem þurfa nauðsynlega að fara í skemmtiferð til Parísar…

Namminamm! Sunday 10 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.
add a comment

Danir gera góða skinku…

Stórundarlegt! Saturday 9 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Undanfarna þrjá daga hefur það tekið mig rúmlega hálfan daginn að losna við eitthvað sem virkar að öllu leyti eins og hálsbólga en er það samt ekki (held ég). Svo kemur það aftur næstu nótt og hverfur alveg á nokkrum klukkutímum. Ég skil ekki bofs…

Annars er það helst í fréttum að héðan er ekkert að frétta nema það að ég fór út að hlaupa. Það var ekki laust við að það væri horft á mig í hlaupabuxunum mínum, raunar grunar mig að verulegur hluti Dana telji að alla þá sem hlaupa án þess að andskotinn sé á hælunum á þeim sé réttast að leggja inn á geðdeild. Enda lifa Danir 10 árum skemur en aðrir Norðurlandabúar.

Wagner og húsgögn… Friday 8 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir, Tónlist.
add a comment

Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu þá er nauðsynlegt að hafa Wagner í botni á meðan húsgögn eru sett saman. Í dag hefur komið í ljós að það er líka mjög mikil hjálp í honum þótt aðeins sé verið að færa húsgögnin til. Einn nágranninn varð meira að segja svo aktívur þegar Sigfried söng sem sterkast um Nothung (sverðið sitt) að hann hóf að bora í vegg af miklum móð! En eftir tiltektar- og skipulagstörn dagsins má segja að tæpur helmingur íbúðarinnar sé tilbúinn, þ.e. farinn að líta eðlilega út þrátt fyrir að búið sé að bæta mínu dóti við Guðnýar dót.

En nú er nóg komið af því að gera eitthvað gáfulegt, það er kominn slæpingstími:P

Þar kom að því Thursday 7 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir, Skóli.
add a comment

Jæja, þá er Guðný komin til Parísar eftir að hafa rifið sig upp klukkan fjögur í morgun til að ná leigubílnum sem var pantaður í gærkvöldi. Það þarf ekki að taka það fram að þegar ég kom aftur frá flugvellinum (þá var klukkan hálf sjö!) fór ég aftur að sofa. Og svaf lengi…

Í dag talaði ég svo við leiðbeinandann um mastersverkefnið og mér sýnist að það geti verið komið í fullan gang í næstu viku, um leið og er búið að skipuleggja hluti eins og vinnuaðstöðu. Þetta verður svakalega spennandi:)

Svo þyrfti ég að fara að ganga í það að koma dótinu mínu fyrir í íbúðinni (fyrir þá sem ekki vita þá er ég fluttur frá Albertslund í íbúðina hennar Guðnýar á Øresundskollegíinu á Amager. Einhver verður að passa húsið á meðan hún er í París:)) en það er allt í kössum í bili. Ég held samt að ég æfi mig fyrst. Og svo verður kominn matur. Og svo þarf ég að lesa grein. Þetta á eftir að taka laaaaaangan tíma:-S

Af krókódílum, kengúrum, strútum og súkkulaði… Wednesday 6 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Eldsnemma í fyrramálið leggur Guðný af stað til Parísar þar sem hún verður í vetur. Í tilefni af því fórum við út að borða í kvöld og lá leiðin á ReefN’Beef, ástralskan veitingastað við Rådhuspladsen. Þar fengum við túnfisk, strút, krókódíl og kengúru og enduðum á hinum stórkostlega eftirrétti “Death by Chocolate”! Eins og nærri má geta þá inniheldur hann súkkulaði. Hann var góður. Rop!

Að skjóta spörfugla með fallbyssu. Tuesday 5 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Skóli, Staka.
add a comment

Þegar maður notar allt of stórtækar og þunglamalegar aðferðir við að leysa einföld verkefni er manni stundum bent á að nú sé verið að skjóta spörfugla með fallbyssu. Í gær var hér leyst einfalt verkefni með aðferð sem svarar til þess að veiða fiðrildi með kjarnorkusprengju. Þetta ætti a.m.k. að vera traust.

Á fimmtudaginn fer ég að hitta Dr. Watson! Leiðbeinandinn minn í mastersverkefninu heitir þessu stórskemmtilega nafni. Ég er að hugsa um að fara á bókasafn og fá Sherlock Holmes lánaðan…

Og svo er fyrsta Köku…, nei ég meina Stöku æfingin í kvöld. Það stóð í emailinum að það yrði kaka:)

Hefjast nú ritstörf á ný! Monday 4 September, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Fréttir.
add a comment

Jæja góðir hausar, þá er ég kominn aftur til Köben. Því má gera ráð fyrir að blogghléinu sé lokið og reikna með því að (næstum því) reglulega birtist hér eitthvað gáfulegt sem mér dettur í hug að deila með ykkur. Eins og áður hefur komið fram þá fannst mér engin sérstök þörf á því að halda uppi reglulegum skrifum á Íslandi því á meðan ég var þar hitti ég fólk í eigin persónu og gat sagt fréttir beint, en hér með er ég aftur kominn í fullan gang.

You have been warned…