jump to navigation

Ojbjakk… Tuesday 31 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.
add a comment

Ekki gekk það. Þetta er ljóta spilamennskan.

Meiri fótbolti… Tuesday 31 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.
add a comment

Þá er að sjá hvort brjálæðingurinn Dennis Wise getur látið Leeds berjast eins og brjálæðinga. Það veitir víst ekki af eins og þeir hafa byrjað tímabilið…

Kannski er bara viðeigandi að harðasta (eða grófasta, bara spurning um skilgreiningu…) liðið í enska boltanum ráði svona villimann sem þjálfara. Hann ætti að minnsta kosti að kunna að taka almennilega í þá þegar þeir gera ekki eins og hann segir;)

Allabaddarí fransí…?!??!??! Wednesday 25 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir, Trompet, Tónlist.
add a comment

Þá er ég kominn aftur til Danaveldis eftir menningarreisuna til Parísar. Ég geri ráð fyrir að allir séu sammála því að það sé mjög menningarlegt að skoða Louvre (tvisvar, og sjá samtals um 2% af safninu), fara upp í Eiffelturninn (alla leið í þetta skipti), fara í catacomburnar undir París (DRAUGALEGT!!) og skoða eldgamlar miðaldakirkjur. Sömuleiðis lít ég svo á að augljóslega sé mjög menningarlegt að borða ís, sæskrímslasúpu (hún var góð), ís, snigla, ís, nautasteik, ís, creme brulée og ís. Það sem ég veit ekki hvort telst menningarlegt er að kaupa alvöru (beitt!) samourajasverð en ég gerði það nú samt! Það er þá engin undankomuleið lengur, ég verð að læra almennilega hvernig á að beita slíku tóli, annars er ekkert kúl að eiga það til. Og svo var Trumpet Voluntary eftir Purcell (í alvöru eftir hann!) og Te Deum eftir Charpentier þrumað yfir lýðnum í fjölskyldumessu í dönsku kirkjunni í París og létu tilheyrendur vel af flutningnum. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi hlotið varanlegan heyrnarskaða þrátt fyrir að hvorki Guðný né undirritaður hafi á nokkurn hátt haldið aftur af orgvél ellegar þokulúðri. Og þá er bara að fara að æfa fyrir næsta skipti sem ég fer til Parísar, ég verð að halda orðsporinu!

Það eru bara 26 dagar þar til Guðný kemur að heimsækja mig til Köben:)

Mmmmm piparsteik:) Monday 9 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.
add a comment

Þetta var góður kvöldmatur, alveg eins og kvöldmatur á að vera (MIKIÐ KJÖT)! Maður verður að borða almennilega áður en hafist er handa við að pakka niður fyrir ferðalag. París skal það vera, þetta verður svakalega skemmtileg ferð enda er ég að fara að heimsækja skemmtilegustu (og sætustu) manneskju í heimi:)

ÖMURLEGT!!!!!! Saturday 7 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.
add a comment

Þá má gleyma þessari undankeppni…

Ég á ekki til orð! Saturday 7 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.
add a comment

Aumingjaskapurinn er algjör…

Og standa sig svo… Saturday 7 October, 2006

Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.
add a comment

Mikið væri nú gaman að sjá íslenska landsliðið einu sinni ná því að taka öll skyldustigin sem í boði eru í einni keppni. Til þess þarf að taka þrjú stig í kvöld…