Græna peysan mín Monday 26 February, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.add a comment
Ég á alveg frábæra peysu. Þessa peysu fékk ég í jólagjöf frá Guðnýju sem prjónaði hana í París. Hún er í misdökkum grænum litum og alveg eins og ég í laginu (sem er gríðarlega mikilvægt, spyrjiði bara Snúð í Múmínálfabókunum…) og síðast en alls ekki síst þá er hún rosalega hlý og notaleg. Og það kemur sér sko vel þegar hálsbólgan er orðin að allsherjarkvefi. Ég er farinn að hita te…
Hóst, hóst… Saturday 24 February, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fréttir.add a comment
I have a hálsbólg… Og í tilefni af því hefur afskaplega lítið verið gert í allan dag. Ég æfði mig þó aðeins en að öðru leyti hefur það aðallega verið tölvan sem hefur fengið athygli í dag. Ég er þó ekki einn um það að halda mig innandyra því það er “allt á kafi í snjó” í Köben (lesist 20-30 cm jafnfallinn snjór) og það hefur leitt til þess að strætisvagnar ganga ekki nema í skötulíki, lestarkerfið fór í klessu og svo virðast ruslabílar ekki geta keyrt í snjó (þið getið ímyndað ykkur hvað haugurinn fyrir utan kollegíið er fallegur…). Og svo kom þessi líka glæsilega frostrigning í morgun. Og þá fyrst varð nú fjör á götunum…
Steeeeeeeik!!!!! Friday 16 February, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.add a comment
Ég var að borða steik! Hún var góð:) Og STÓR!!! Þannig er sko mál með vexti að við Guðný fórum út að borða áðan á Reef’nBeef sem er ástralskur veitingastaður hér í Köben. Þar eru í boði kengúrur, strútar, krókódílar og alveg stórkostlegt nautakjöt. Og svo lesendur geti nú fengið vatn í munninn þá skal það tekið fram að í forrétt borðaði ég túnfisksteik með sesamfræjum, engifer, ólífum og kapers, í aðalrétt 600 gramma nautasteik sem ég hljóp á eftir út um allt hús með gaffalinn á lofti, og í eftirrétt var svo hin óendanlega snilld: Death by chocolate!!!
NAMMM!!!!!
Sungið í sturtunni… Thursday 1 February, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Tónlist.add a comment
Ég hef aldrei verið mikið fyrir að syngja í sturtunni en gerði það samt núna áðan. Ég var nefnilega í söngtíma fyrr í dag og það var náttúrlega nauðsynlegt að æfa það sem var gert í tímanum…