Talið niður til Parísar… Saturday 31 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir, Staka.4 comments
Á miðvikudagskvöldið fer ég til Parísar að hitta Guðnýju í þriðja skiptið þennan veturinn! Þar verð ég yfir páskana og eina viku umfram því Staka kemur svo á fimmtudeginum eftir páska í tónleikaferðalag. Ætli séu ekki góð páskaegg í París…
FRÁBÆRT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Friday 30 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.add a comment
Það er orðið langt síðan þeir sem styðja Leeds United gátu notað þetta orð síðast til að lýsa frammistöðu liðsins en það er hægt eftir leikinn í dag. Og mikið var segi ég nú bara. Það er þá ennþá smá von um að halda sér í deildinni.
Sólskin!! Thursday 29 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir, Fótbolti.add a comment
Eftir vælublogg um skítakulda hér fyrir nokkrum dögum er víst rétt að þær upplýsingar komist til skila að nú virðist loksins vera að koma vor og sennilega er endanlega hætt við að koma bara með veturinn aftur. Undanfarna daga hefur verið algjörlega heiðskýrt og á nóttunni alveg stórglæsilega stjörnubjart. Það er bara gaman að vera minntur á það reglulega af hverju mér finnst stjarneðlisfræði svona spennandi.
Og á meðan ég man; þetta var vitlaust hjá mér, Íslendingar og Spánverjar gerðu jafntefli á Laugardalsvelli síðast þegar liðin mættust en þar áður unnu Íslendingar. Bara svo það sé á hreinu…
Þá er að berjast eins og ljón!!! Wednesday 28 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.2 comments
Ætli sé ekki rétt að rifja það upp að síðast þegar Íslendingar spiluðu við Spánverja þá unnu Íslendingar 2 – 0. Það er alveg hægt að vinna þá þótt það sé svakalega erfitt…
Skattmann skilaður! Monday 26 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.add a comment
Það er þá frá og þarf ekki að hugsa um það aftur fyrr en á næsta ári. Eða það ætla ég allavega rétt að vona…
Og þá er hægt að sjá bloggið mitt á Mikkavef Monday 26 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Fréttir.add a comment
Nú er búið að breyta skráningunni minni á Mikkavef svo uppfærslur á þessari síðu birtist í staðinn fyrir uppfærslur á gömlu síðunni (sem er ekki lengur uppfærð). Og því ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að hér komi fjöldi fólks á hverjum degi til að sjá hvörn fjárann ég sé eiginlega að delera um í dag…
Tapaður klukkutími! Sunday 25 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.3 comments
Í nótt var heilum klukkutíma rænt! Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta eiginlega bara kjánalegt kerfi, að vera að breyta klukkunni svona fram og til baka. Þetta á víst að vera svo sniðugt. En það er óþægilegt að vakna við það að klukkan er klukkutíma “meira” en hún “ætti” að vera.
Úff! Saturday 24 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.4 comments
Mér líst alls ekki á leikinn við Spánverja á miðvikudaginn miðað við þessar 45 mínútur sem þeir hafa spilað á móti Dönum. Að vísu misstu Danir mann út af á 20. mínútu og Spánverjar réðu illa við þá áður en það gerðist en Íslendingar höfðu nú svo sem ekkert mikið í Dani að gera síðast heldur. Ég fer ekki ofan af því að eini sénsinn er að spila bara sem allra harðasta vörn og tækla þá miskunnarlaust og með miklum látum, nákvæmlega eins og Ítali (heimsmeistarana munið þið, þeir fóru grenjandi heim…) um árið og vona bara að dómarinn leyfi að spila fast. En við sjáum víst fljótlega hvernig fer.
Salmónella! Friday 23 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.2 comments
Danir (eins og margir fleiri) eru hræddir við salmónellu (ekkert skrýtið við það svo sem) sem sést meðal annars á því að á umbúðum utan um kjúkling standa alltaf skrifaðar nánast með stríðsletri leiðbeiningar um það hvernig skuli matreiða kvikindið án þess að fara sér að voða. En svo getur maður keypt danskan kjúkling (sem hefur þá trúlega verið slátrað á dönsku) sem er merktur skýrt og greinilega “Salmonella-fri”. Ég er að rífa í mig einn svoleiðis núna og hann er bara góður. Það er ágætt að vita það að salmonellan hafi fengið frí en merkilegt þykir mér að það virðist bara vera gert í Danmörku…
Skítakuldi! Thursday 22 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.11 comments
Fyrir aðeins örfáum dögum hélt ég að það væri að koma vor í Danmörku, það hlýnaði talsvert og lægði eftir langan kafla af stanslausum strekkingi og það sást meira að segja til sólar. Í gær og í dag hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta hafi bara verið rangur skilmysingur, það er ekki að koma vor heldur VETUR! Sumrinu hefur trúlega verið aflýst til að spara lofthjúpshitunarkostnað (hver sem borgar nú þann reikning…) eða þá að framleiðendur vetrarfatnaðar standa á bak við skuggalegt samsæri svo salan hjá þeim aukist. Það er liðinn góður klukkutími frá því ég kom inn og þrátt fyrir funheitt lasagna er ég ennþá við sama hitastig og meðal grýlukerti! Það merkilega er að ef ég væri staddur á Íslandi myndi ég ekkert kippa mér upp við svona veðurvitleysu, mér yrði ekki einu sinni kalt. En nú bý ég í heitari löndum (hélt ég) og þá reiknar maður auðvitað með skárra veðri en á klakanum. Ég er farinn í HEITA sturtu!
Rölt um Köben Wednesday 21 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.2 comments
Það er eitt sem má ekki gleyma að gera reglulega þegar maður býr í Köben og það er að fá sér göngutúr um miðbæinn. Það var orðið langt síðan ég fór síðast af stað án þess að vera á leiðinni eitthvert sérstakt og hafa engan tíma til að þvælast um að vild. Svæðið var svo sem ekkert öðruvísi núna en síðast þegar ég fór en þetta er samt alltaf gaman.
Næsta verkefni Tuesday 20 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Staka.2 comments
Það er farið að styttast verulega í að Staka fari til Parísar að kynna söng Íslendinga búsettra í Danmörku fyrir Frökkum! Þar sem það er Jónasarár í ár þá er prógrammið að miklu leyti með textum eftir Jónas. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig það gengur í publikum þar.
Fúlt! Monday 19 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti, Tónlist.2 comments
Lærið er enn í fýlu út í mig og vill ekki leyfa mér að spila fótbolta. Það var allt í lagi í dag svo ég ákvað að fara á æfinguna, hita bara mjög rólega upp og sjá hvernig gengi en það var fljótt að byrja að stífna um leið og ég fór að reyna meira á mig. Þá var auðvitað ekkert annað að gera en að drífa sig bara heim til að gera ekki illt verra, ég nenni alls ekki að fara að standa í þessu í margar vikur. Hvað segja annars læknanemar sem lesa þessa síðu um vægar tognanir framan á læri? Hvern fjárann á að gera við þær?
Í öðrum áhugaverðum fréttum er það að ég er búinn að finna falskasta píanó í heimi! Það er í æfingaherbergi á Öresundskollegíinu og er svo stórkostlega vanstillt að ég hafði verulegar áhyggjur af því að höggbylgjurnar frá því myndu mala aðra innanstokksmuni mélinu smærra! Ef það væru gluggar á herberginu þá væri allt gler löngu farið fyrir ætternisstapa og það með látum…
Mikið stuð! Sunday 18 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Staka.4 comments
Allur gærdagurinn fór í kóramót íslenskra kóra erlendis, æfingar um morguninn, tónleikar eftir hádegi og svo gríðarlegt partý um kvöldið! Ég var kominn heim um hálf fimm og vaknaði ekki fyrr en rétt upp úr fjögur!
Sumarfrí!! Friday 16 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.1 comment so far
Það er að segja ekki fyrir mig, eða raunar neinn sem ég þekki, en það er hópur fólks á mjög háum launum hjá íslenska ríkinu (og þau fara stöðugt hækkandi, ég spái því að þau hækki um helming 13. maí) sem er alveg að komast í sumarfrí frá vinnunni sinni og þarf ekki að mæta í hana aftur fyrr en í október (eða þar um bil)! Og svo er sagt að kennarar hafi langt sumarfrí! Og svo munu þau ekki einu sinni sitja aðgerðalaus (ef það væri nú svo gott…) heldur æða um allt (á fullum launum) lofandi upp í ermar, skálmar, rassvasa, brjóstvasa, innanávasa, hálsmál og allt mögulegt annað sem hægt er að stinga meiningar- og merkingarlausum loforðum í til þess að sannfæra grunnhyggna vinnuveitendur sína um að þau eigi að fá annan fjögurra ára samning því annars fari allt til andskotans og Íslendingar endi á að þurfa að rifja upp hvernig á að byggja torfbæi og hvar sé hægt að nálgast mó. Og til að krydda allt saman er svo boðið upp á sandkassamálflutning um að ef þessi þarna komist aftur að muni enginn fá neitt að borða því hann/hún sé svo vondur/vond. Og þessu trúir fólk…
Nýr linkur! Thursday 15 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Tónlist.add a comment
Nú hef ég bætt við nýjum link, á bloggsíðu Kristins Sigmundssonar stórsnillings (í a.m.k. tveimur merkingum…). Fyrir utan að syngja frábærlega, eins og allir vita, þá reynist maðurinn líka vera alveg stórkostlegur penni, ég hef stundum setið hér flissandi eins og fífl við að lesa þessa síðu!
Lalalalalalalalalala… Thursday 15 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Tónlist.add a comment
Þá er að fara í fyrsta söngtímann eftir að kvefið lagaðist:) Nú kemur í ljós hvort ég er nokkuð búinn að gleyma öllu…
Endalausar viðbætur! Wednesday 14 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg.2 comments
Nú er kominn teljari hér til hliðar og sömuleiðis möguleiki á að leita að tilteknum orðum eða frösum á síðunni (til að finna eitthvað sem mann rámar í að hafa lesið en man ekki alveg hvar eða hvenær). En ég lofa engu með að það verði verðlaun fyrir að hitta á flottar tölur. Það væru þá helst stórar prímtölur (ef lesandi áttar sig á því sjálfur)…
Sól, sól skín á mig! Wednesday 14 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Skóli.2 comments
Eða það myndi hún gera ef ég væri ekki inni að hamast á tölvunni svo þetta mastersverkefni mitt verði nú einhverntíma búið. Er það alveg sér íslenskt fyrirbæri að vera alveg friðlaus innandyra um leið og kemur sól og hitinn fer upp fyrir 5°C?
Oft hef ég nú sungið meira en þetta… Wednesday 14 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Staka.4 comments
Ég entist bara hálfa æfingu, var orðinn illilega rámur í pásunni. Eftir það var lítið að gera annað en að sitja og hlusta. Næsta verkefni hjá Stöku er að taka þátt í kóramóti íslenskra kóra í útlöndum sem fer fram í Köben á laugardaginn, það verður bara að koma í ljós hvort ég get sungið almennilega þá eða hvort ég mun ennþá sitja og hlusta. Það er þá að minnsta kosti hægt að kýla vömbina í veislunni um kvöldið hvernig sem fer…
Og það er athyglisvert að með þessari færslu er ég búinn að jafna fyrra met í greininni “bloggaðasti mánuður frá upphafi”. Og mars er ekki hálfnaður! Það er greinilegt að ég byrjaði blogg með látum (eins og trúlega flestir) og svo jafnaðist tíðnin fljótlega út. En það er auðvitað skemmtilegast að uppfæra oft, þá nennir fólk að koma reglulega við og lesa…
Fyrsta kóræfingin eftir kvef… Tuesday 13 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti, Staka.2 comments
Nú er það spennandi! Ætli ég geti sungið í kvöld eða mun ég byrja að hósta þegar upphitunin er hálfnuð og vera orðinn þegjandi hás fyrir pásu? Miðað við hvað síðasta upphitun (í fótboltanum í gær) gekk frábærlega er víst best að vera við öllu búinn…
Svo það komi nú fram Tuesday 13 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Komment.add a comment
Þegar kommentað er við færslur á þessari síðu þarf að gefa upp email svo kerfið geti áttað sig á því hvort það er nýr “kommentari” á ferð. Komment frá fólki sem ekki hefur kommentað hér áður (þ.e. frá því ég flutti síðuna) bíða eftir að ég samþykki þau, þegar ég er búinn að samþykkja eitt komment getur sá sem það átti kommentað óhindrað upp frá því. Sömuleiðis eru komment sem hafa linka látin bíða eftir að ég samþykki þau. Það er því ekkert skrítið þótt fyrsta kommentið birtist ekki strax.
En þetta kerfi er alveg svakalega sniðugt! Ég get bætt við eins mörgum aukasíðum og ég vil (eins og gestabók), sett merkimiða á hverja færslu fyrir sig (svo ef einhver vill lesa allt sem ég hef skrifað um t.d. trompetspil verður fljótlega hægt að nálgast það allt á einum stað) og kerfið heldur sjálft utan um alla statistík (heimsóknir á síðuna og slíkt). Og það er engin þörf á að tengja utanaðkomandi forrit eins og kommentakerfi inn í þetta með tilheyrandi veseni og lúsaleit út um allt til að finna eina litla prentvillu í HTML kóda því það er allt innbyggt í kerfið.
Ha! Er ég alveg að sleppa mér í nýja dótinu? Tuesday 13 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg.7 comments
Einn stór kostur við þetta kerfi er möguleikinn á gestabók og hún er komin upp! Það er alltaf gaman að sjá hverjir hafa kíkt í heimsókn jafnvel þótt það hafi kannski ekki allir eitthvað að segja um tilteknar færslur.
Fyrsta færslan í nýju kerfi! Tuesday 13 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Komment.5 comments
Mér líst strax miklu betur á þetta kerfi en bloggerinn, það eru miklu fleiri möguleikar og hægt að hafa síðuna eins stóra eða litla í sniðum og hver vill. Og svo er (vonandi) í lagi með kommentakerfið…
Og ég er fluttur! Monday 12 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg, Komment.2 comments
Það er að segja: Ég er búinn að starta annarri bloggsíðu og ætla að nota hana framvegis. Ég fékk einfaldlega nóg af þessu kommentabrasi svo þegar ég sá nýju síðuna hennar Hildigunnar ákvað ég að prófa hvort ég fyndi ekki eitthvað sem mér litist á hjá sama síðugerðarmanni (húrra fyrir síðugerðarmanninum!). Því er það svo að gamla síðan (á blogspot) verður ekki uppfærð frekar en henni verður þó haldið við ef einhvern skyldi fýsa að lesa yfir gömul komment (sem ég gat ekki fært á milli). Í því skyni verður linkað á hana frá nýju síðunni (og til baka). En nýja síðan er hér. Því gæti verið góð hugmynd að uppfæra linka á mig. Svo URLið sjáist örugglega líka þá er það hér: http://jongudm.wordpress.com
Vá, hvað það er erfitt að koma sér í fótboltaform! Monday 12 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.add a comment
Ástæðan: Meiðsli. Aftur og aftur og aftur. Nýjasta afrekið er að togna framan á læri í upphitun (já ég veit að það þýðir of þjösnaleg upphitun;)). Svakalega skemmtilegt. Annars á þetta ekki að þurfa að koma neitt á óvart því átökin sem líkaminn þarf að standast í fótbolta eru svo ólík öllu öðru sem ég hef gert í mörg ár. En skrokkurinn lærir þetta smám saman eins og annað.
Mmmm… Sunday 11 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt.add a comment
Mikið er það nú alltaf skemmtilegt þegar manni er boðið í mat:)
Stórkostlegur fótboltaleikur (ahem…) Saturday 10 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.2 comments
Ég spilaði nú raunar ekki svo það er ekki hægt að kenna mér um að fyrirsögnin er með allra mestu öfugmælum sem sjást:) Ég held bara að ég ætti alveg að geta fengið að spila þegar mótið byrjar, ég er a.m.k. ekkert mikið verri en sumir sem spiluðu allan leikinn (bara aðeins verri…). Við sjáum hvað setur:)
Zzzzzzzzzz… Friday 9 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Fréttir.2 comments
Í morgun fékkst afar góð mæling á það nákvæmlega hversu erfitt er að vakna þegar maður er að tala í símann (eða raunar var það nú Skype) til 2:30! En svo varð raunar dagurinn ágætur þegar ég sá veðrið því það var bara fínt, búið að hlýna mikið frá síðustu dögum og þurrt (til tilbreytingar). Kannski kemur einhverntíma vor…
150 færslur:) Thursday 8 March, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg.add a comment
Það er helst í fréttum í dag að þetta er bloggfærsla númer 150!