Klukk! Wednesday 18 July, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Blogg, Bull, Fótbolti, Golf, Tónlist, Vinna, Íþróttir.trackback
Þar kom að því að ég var klukkaður í fyrsta skipti á mínum bloggferli. Guðný klukkaði mig og hafi ég skilið reglurnar rétt á ég að skrifa tíu staðreyndir um sjálfan mig. Það er ekki ljóst hvort staðreyndirnar eiga að vera eitthvað sem enginn/fáir vita eða hvort þær eiga bara að vera skemmtilegar svo ég læt bara eitthvað vaða:
Ég er alveg rosalegt sportidjót eins og það er oft kallað, það skiptir næstum því engu máli hvaða íþrótt það er eða hver/hverjir/hverjar eru að keppa, ég er alltaf til í að fylgjast með. Og já, það þýðir að ég myndi kveikja á sjónvarpinu til að horfa á beina útsendingu frá þriðjudeildarfótbolta í Miðbaugs Guineu ef ég hefði ekkert þarfara við tímann að gera. En það skal nú tekið fram að ég hef oft eitthvað þarfara við tímann að gera…
Ég er algerlega forfallinn golfari þótt það hafi nú ekki borið mikið á golfiðkun undanfarin tvö ár. Ég kem með mikið comeback næsta sumar…
Ég er nörd. Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég sé blómkálshaus er ekki hvað mig langi mikið í blómkál (þótt mér þyki blómkál mjög gott) heldur hvað fraktalstrúktúrinn í því sé flottur.
Mér finnst rosalega gaman að rífa tölvuna mína í sundur og setja hana svo saman aftur. Og hún virkar á eftir.
Og þegar ég fer í sund, í ræktina eða á einhvern annan stað þar sem maður setur fötin sín eða annað í númeraðan skáp finnst mér skítt ef talan er ekki prímtala.
Ég get drukkið gríðarlegt magn af kóki (Alvöru kóki. Ekki diet, ekki zero, ekki light og ekki Pepsi. Já ég finn muninn.) á svakalega stuttum tíma.
Besti matur í heimi er risastór blóðug nautasteik með piparsósu. Ég gæti borðað nautasteik í hvert mál. Á hverjum degi. Alltaf.
Ég á allar Star Wars myndirnar á DVD, þær eldri á ég líka á VHS. Ég á líka tónlistina úr öllum myndunum á samtals 9 geisladiskum. Ég giska á að ég hafi (að meðaltali) séð þær svona 10 sinnum hverja.
Ég vinn lang best í skorpum, get stundum afkastað meiru á þremur dögum en þremur vikum þar á undan.
Ég er búinn að panta nýjustu Harry Potter bókina svo hún bíði eftir mér í bókabúðinni á laugardaginn.
Ég held ég sleppi því að klukka, það eru hvort sem er næstum allir búnir að svara þessu.
þú gleymdir að nefna það að þér finnist gúrkur bragðast eins og pappír .. það er án efa merkilegasta staðreynd um manneskju sem ég veit um ..
Nánar tiltekið finnst mér það að borða gúrku vera eins og að borða pappír (húðin) á sama tíma og maður drekkur vatn (það sem er undir húðinni). Er nokkuð bragð af gúrku?
Ok, þú ert ruglaður… Já, gúrkubragð!
Bíddu bara þangað til verður boðið uppá ís með gúrkubragði í ParadIs