Mig langar í kók… Wednesday 29 August, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Skóli.3 comments
Algerlega nauðsynlegt þegar maður situr tímunum saman í herbergi með sex tölvum og stórum server og er að reyna að halda einbeitingu við að greina yfir 200 gammablossa.
Tölvitölvitölvi… Monday 27 August, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Skóli.4 comments
Mig verkjar í handleggina…
Og það er gaman þegar mikilvægir leikir enda eins og þeir eiga að gera! Saturday 25 August, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.2 comments
Nottingham Forest 1-2 Leeds United
Fjórir leikir búnir (þrír í deild, einn í deildabikar), fjórir sigrar! Enda eins gott þegar litið er á að þeir byrja tímabilið með 15 stig í mínus! Bara 6 stig eftir í núllið, koma svo…
Sögulegur leikur! Saturday 25 August, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Fótbolti.add a comment
Í dag gerist það í fyrsta skipti í sögu ensku deildakeppninnar að tvö lið sem hafa spilað úrslitaleik í Evrópukeppni félagsliða mætast í þriðju deild (sem raunar heitir fyrsta deild núna eftir að efsta deildin fékk nafnið Premier League, næsta deild þar fyrir neðan heitir svo Championship og svo koma League 1 og League 2!)! Nottingham Forest (tvöfaldir Evrópumeistarar) og Leeds United (mættu Bayern München í úrslitaleik 1975, töpuðu naumt í leik sem einkenndist af stórfurðulegri dómgæslu) mætast á The City Ground í Nottingham. Ég bíð spenntur…
Smávægilegar breytingar… Friday 24 August, 2007
Posted by Jón Hafsteinn in Blogg.add a comment
Ég veit ekki hvort nokkur hefur tekið eftir því en ég er búinn að færa allt viðmótið á síðunni yfir á ensku. Ástæðan er einföld, það truflar mig miklu meira að hafa viðmótið hálfþýtt yfir á vonda íslensku en að hafa það allt eins á góðri ensku. Það er að sjálfsögðu ekki alveg nógu gott að viðmótið sé á ensku þegar bloggið er á íslensku en það var alveg að gera mig brjálaðann að sjá dagsetningu upp á “amerísku” nema með mánaðuðinn á íslensku (með stórum staf!) og að hafa svo “ummæli” fyrir comment! Það getur verið að ég skipti aftur ef þeir hjá WordPress breyta hjá sér kerfinu þannig að ég geti þýtt viðmótið sjálfur en ég reikna þó ekki með því.
