Snjallur… Wednesday 28 October, 2009
Posted by Jón Hafsteinn in Almennt, Guðný, HTML, Karitas, Tölvur.trackback
Sumt getur látið mann efast alvarlega um eigið gáfnafar. Til dæmis þegar maður vaknar hálf sjö (og ég slapp vel, Guðný mátti sætta sig við að vakna hálf sex!) af því að Karitas er að brýna raustina og ætlar ekki að fara aftur að sofa (og það má í sjálfu sér alltaf búast við að hún geri þetta við og við) þá virkar það ekki mjög gáfulegt eftir á að hyggja að hafa skrifað HTML kóða til hálf þrjú.
Matseðillinn í dag mun samanstanda af kaffi, kóki, súkkulaði, kóki, kaffi, kóki og svo smá kóki.
Vantar ekki ís á matseðilinn?
Jú, en honum var bætt við um kvöldið!