Ný jólahefð

Það sem manni finnst algerlega nauðsynlegt til að jólin geti komið getur verið eitt og annað, og ástæðurnar fyrir því í raun hverjar sem er.  Hér á bæ er ein ný orðin til á síðustu þremur árum, og það eru heimagerðar flatkökur!  Ástæðan er einföld:  Þær eru bara svo miklu betri en úr búð, og með fullt af hangikjöti og smjöri eru þær hinn fullkomni jóladagsmorgunmatur.  Mmmmmmm…

Og áður en einhver spyr, Guðný bakar þær, ekki ég.

Allt of seint tónleikaplögg!

Í kvöld klukkan 20:30 mun Kór Fella- og Hólakirkju halda jólatónleika i kirkjunni ásamt Katie Buckley hörpuleikara, Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara og einsöngvurum úr kórnum.  Ég get lofað mjög fallegum og skemmtilegum tónleikum með verulega flottum kór og frábærum stjórnanda, einsöngvurum og hljófæraleikurum.  Miðaverð er aðeins 1500 krónur og á eftir er boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur í safnaðarheimilinu.

Desember er galinn!

Ef einhver skyldi hafa haldið að hér væri allt stopp þá er það rangur skilmysingur, hér hefur bara varla verið stoppað til að anda síðasta mánuðinn.  Ég hef meira að segja trassað að æfa mig (usss…..) sem ég var annars kominn svo vel í gang með.  Það er eins gott að það detti ekki alveg niður því nú fjölgar stöðugt giggunum með Bucinae Boreales og það sem við erum að spila er ekkert létt (ekki allt a.m.k.).  Til að fá hugmynd um hvað við erum að spila er best að fara á youtube og leita að Mnozil Brass. Snilldarmúsík en þótt við séum klárir þá erum við ekki alveg svona góðir…

Spam er merkilegt fyrirbæri…

Það er einn spammari sem er búinn að finna bloggið mitt og mokar hér daglega inn nokkrum kílóum af kæfu.  Akismet spam filter finnst kæfa góð svo þetta er ekkert vandamál, ég er ekkert of góður til a smella daglega á “Empty Spam”.  En nafnið sem þessi spammari gefur upp er í hæsta máta undarlegt.  Hvernig dettur spammara sem mokar inn lélegri ensku í hug að kynna sig sem “Elektrische Zahnbuerste”???  Eru rafmagnstannburstar orðnir svo háþróaðir að þeir eru komnir í auglýsingabransann?

Mér er spurn…