Ef einhver skyldi hafa haldið að hér væri allt stopp þá er það rangur skilmysingur, hér hefur bara varla verið stoppað til að anda síðasta mánuðinn. Ég hef meira að segja trassað að æfa mig (usss…..) sem ég var annars kominn svo vel í gang með. Það er eins gott að það detti ekki alveg niður því nú fjölgar stöðugt giggunum með Bucinae Boreales og það sem við erum að spila er ekkert létt (ekki allt a.m.k.). Til að fá hugmynd um hvað við erum að spila er best að fara á youtube og leita að Mnozil Brass. Snilldarmúsík en þótt við séum klárir þá erum við ekki alveg svona góðir…
Advertisement
Ekki slæm fyrirmynd! Áfram með æfingarnar, þá kemur þetta!
Það stendur til!
og inn á þigrörið með ykkur!
Það gæti endað þannig, ef vel gengur. Við verðum með tónleika á Rosenberg 25. janúar sem verða plöggaðir ótæpilega hér!