Daily Archives: Saturday 28 January, 2012
Til tilbreytingar!
Aldrei slíku vant (a.m.k. ef maður rifjar ekki upp meira en 10 – 12 ár aftur í tímann) hefur verið almennilegur vetur undanfarið, með flottu skíðafæri í Bláfjöllum upp á hvern einasta dag. Ennþá merkilegra er að við höfum komist á skíði! Um daginn kom Karitas með í pulk sem vakti mikla aðdáun viðstaddra. Og ofan í þessa snilld heyrir maður svo væl um hvað fólk sé orðið þreytt á snjónum!!