Um þessa síðu…
Hér er fært til bókar allt það bull sem mér dettur í hug að troða upp á saklausa lesendur. Einnig getur svo sem alveg verið að inn á milli leynist eitthvað gáfulegt en ég held það geti verið vandi að finna það. Engin ábyrgð er tekin á tíma sem tapast við slíka leit…
Eftir löng hlé hvað eftir annað frá því ég flutti frá Köben er síðan í raun orðin að algerum brandara en við sjáum til hvort eitthvað rætist úr. Það gengur ekki að taka svaka sprett í uppfærslum sem endist í tæpan mánuð og láta svo ekki sjá sig í næstu fjóra (fimm, sjö, tólf…). Endilega látið heyra í ykkur ef þið hafið áhuga á að lesa, hvort sem þið viljið lesa meira af því sem ég hef skrifað hingað til eða einhverju allt öðru…