Ég hef sjaldan verið eins stoltur af að styðja Leeds United og í dag.
Category Archives: Fótbolti
Þar kom að því að landsliðið yrði tekið alvarlega!
Það er orðið langt síðan ég varð eins ánægður með nokkurn skapaðan hlut í kring um íslenska karlalandsliðið í fótbolta og ég er með nýja þjálfarann. Ekki aðeins vegna þess að þetta er augljóslega toppþjálfari með svakalega reynslu sem á örugglega eftir að rífa liðið upp á rassgatinu heldur lét hann sænska liðið alltaf spila nákvæmlega þá gerð af fótbolta sem íslenska liðið verður að spila. Það skein alltaf í gegn að fyrsta prioritet var að erfitt væri að brjóta liðið niður og engin aulamistök gerð. Það var aldrei nett sérlega gaman að horfa á sænska liðið spila en það var rosalega effektíft (og er enn). Ef hann getur breytt 0-0 í 1-0, 0-2 í 0-0 og 0-4 í 0-1 þá er mér alveg sama þótt spilið verði ekkert augnayndi. Þetta snýst um að VINNA. Svo er ekki síður flott að núna er íslenska landsliðið með þjálfara sem er þekktari en allir leikmennirnir nema einn, svo ef einhverjir stjörnustælar hafa verið að skemma fyrir undanfarin ár ættu þeir hér og nú að heyra sögunni til. Það er á hreinu að ef einhverjir eru með vesen þá verða þeir einfaldlega ekki í liðinu og geta engum um kennt nema sjálfum sér.
Ég hlakka til!!
Hér er búið að skila Skatmand!
Og þá þarf ekki að velta honum fyrir sér í heilt ár (sem er gott þar sem fátt er eins óendanlega leiðinlegt…). Nú er bara að halda sér vakandi svo maður nái að klára að horfa á leikinn!
Næsta verkefni!
Handboltalandsliðið er ekki fyrr búið að klára eitt verkefni (og það heldur betur glæsilega, eins og þeirra er von og vísa) en fótboltaliðið fær úthlutað sínu næsta. Og það verður víst heldur snúnara:
H riðill:
- Portúgal
- Danmörk
- Noregur
- Kýpur
- Ísland
Kýpur eiga þeir nú að klára auðveldlega bæði heima og úti en allt hitt verður mjög erfitt. En í þessum riðli felst líka ákveðið tækifæri sem er það að tvö sterkustu liðin (Danmörk og Portúgal) eru léttspilandi og engin hörkutól (þótt það séu undantekningar í danska liðinu) og því er alveg hægt að eyðileggja þeirra spil með því að tækla þá strax fast og grimmt. Takist það er leikurinn kominn á plan sem íslenska liðið getur unnið hann á því þeir eru miklu sterkari. Það er bara svo furðulegt að þetta virðast þeir aldrei vera til í að gera nema gegn algeru ofurefli (Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Spánn svo nokkur dæmi séu nefnd) en renna svo á rassinn á móti mun lélegri liðum. En kannski er komið að því að þeir átti sig á þessu, hver veit?
Og í dag er gaman!
Það þarf ekki að taka það fram að ég er í Leeds United bol í dag, og hef hugsað mér að halda því áfram næstu daga. Það er nóg af ManUre stuðningsmönnum að vinna með mér…
ÞAÐ VAR LAGIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Svona á að stinga á blöðrunni hjá þessum drullusokkum! Snilldarlegur leikur!
Það var kominn tími til!
Sex árum eftir að Leeds United fóru nánast á hausinn og féllu niður um tvær deildir í framhaldinu mæta þeir þeim ömurlega ruslaralýð sem kallast Manchester United. Ég ætla engu að spá um úrslit leiksins, mig grunar að það verði einum of niðurdrepandi, en það mun koma mér stórlega á óvart ef ekki brotna bein. Það að bæði lið klári með 11 leikmenn myndi flokkast undir kraftaverk. Þessi lið HAAATAAAA hvort annað!
Auðvitað!
Eins og venjulega, lokað á útsendinguna utan Bretlandseyja. Urrrrrr…
Nú er bara að vona að það verði hægt að horfa hér!
Á morgun gæti verið fyrsta tækifærið mitt í mörg ár til að sjá Leeds spila, þegar þeir mæta Oldham í bikarnum. Heimasíða enska knattspyrnusambandsins ætlar að sýna leikinn beint í ólæstum aðgangi og enn sem komið er hefur ekkert komið fram um að straumurinn verði takmarkaður við Bretlandseyjar. Ég hlakka til! Ef það kemur svo í ljós að leikurinn sé ekki aðgengilegur hér verð ég ekki sáttur…
Ég er sáttur við þetta!
Leeds United 4 – 0 Yeovil Town
Annar 4 – 0 leikurinn í röð. Svona á að rúlla upp deildarkeppni. Það er að vísu ekki verjandi annað í þessari deild en það þarf að framkvæma það samt.
Afslöppun…
Karitas sefur úti í vagni og ég sit hér og fylgist með fótboltanum á síðunni hjá BBC. Leeetiiiiii…
Þar kom að því!
Það eru liðin nokkuð mörg ár síðan stuðningsmenn Leeds United gátu bæði verið stoltir af frammistöðu liðsins og ánægðir með stöðuna í deildinni á sama tíma en sá tími er greinilega kominn aftur. Fjögurra stiga forskot eftir 14 leiki og lang besta markatalan í deildinni. Það sýndi best karakterinn í liðinu að þegar þeir loksins töpuðu leik í þrettándu umferð voru næstu mótherjar bara teknir og flakaðir eins og ekkert væri!
Svona eiga leikir milli þessara liða að vera!
ManUre tapar en bæði lið missa menn í leikbann fyrir rauð spjöld. Sem eykur (aðeins) líkurnar á að önnur lið fari fram úr þeim báðum og ýti þeim neðar á töfluna. Rétti staðurinn fyrir þessi tvö lið er auðvitað í tveimur neðstu sætunum. Í neðstu deild…
Eins og áður hefur komið fram hér…
Það gerist aðeins tvisvar á ári (nema tilviljanir skerist í leikinn) að ég haldi með Liverpool í fótboltaleik. Til þess að það gerist þurfa þeir að vera að spila við Manchester United (eða KR, en hversu líklegt er það?). En í dag er einn af þessum undarlegu dögum þar sem ég myndi fara í Liverpoolbúning ef ég ætti hann til (og héldi að hann hefði einhver áhrif) til að hvetja þá áfram í að stinga á því dragúldna graftarkýli sem drullusokkarnir frá Manchester eru á íþróttinni. Leikurinn ætti a.m.k. að verða spennandi, og ef hann ætlar að fara í einhverja vitleysu get ég alltaf farið að lesa um uppsetningu á file serverum…
Gott merki
Það er hægt að benda á ýmislegt svo sem eins og það að Suður Afríka heldur mótið og þurfti því ekki að spila sig inn og það að leikurinn var hálfgert basl en eftir stendur að íslenska karlalandsliðið vann lið sem verður á næsta heimsmeistaramóti. Kvennaliðið er komið upp úr þessari deild og orðið að liði sem maður býst við að sjá komast reglulega inn á stórmót (mikið vill meira eins og sagt er). Kannski er ekki alveg útilokað að næsta undankeppni í karlaflokki verði spennandi.
EM 2008 dagur 13
8 liða úrslit komin í gang og spennan er í hámarki!
Portúgal 2-3 Þýskaland
Mikið var ánægjulegt að sjá Þjóðverjana stinga á því dragúldna graftarkýli sem þetta portúgalska brauðfótalið er á fótboltanum. Lið sem teflir fram 7-8 leikmönnum sem dýfa sér í jörðina í hvert skipti sem andstæðingur er einhversstaðar nálægt er ekki að spila fótbolta og á ekki skilið að ná árangri, hversu hæfileikaríkir sem leikmennirnir kunna að vera að öðru leyti. Enda áttu þeir aldrei möguleika hér gegn þrumusterku þýsku liði sem stýrði leiknum frá fyrstu til síðustu mínútu. Portúgalska vörnin var opnuð hvað eftir annað og var alveg úti að aka í aukaspyrnum og hornum enda skoruðu Þjóðverjar tvisvar eftir aukaspyrnur.
Dómari var Peter Frojdfeldt, Svíþjóð. Fínn.
EM 2008 dagur 12
Síðasti dagur riðlakeppninnar, hér eftir verður barist upp á líf og dauða!
Rússland 2-0 Svíþjóð
Rússar voru miklu betri og verðskulda fyllilega að komast áfram, þetta lið gæti alveg unnið mótið. Svíarnir voru hugmyndalausir og áttu engin svör við hröðum vængsóknum Rússanna. Sænska liðið virðist vera í sömu krísunni og handboltaliðið þeirra sem getur ekkert eftir að gömlu stjörnurnar hættu. Rússar eru því komnir áfram en Svíar eru úr leik.
Dómari var Frank De Bleeckere, Belgíu. Var góður og virðist hafa tekið sig saman í andlitinu eftir ömurlegan fyrsta leik.
Grikkland 1-2 Spánn
Spánverjar skiptu öllu liðinu út enda skipti þessi leikur bókstaflega engu máli, Grikkir á leið heim og Spánverjar þegar komnir áfram. En meira að segja varalið Spánverja er með sterkustu liðum á mótinu og þótt Grikkir hafi skorað fyrst þá áttu þeir aldrei raunverulegan möguleika, þetta var bara spurning hversu mikið Spánverjarnir nenntu að gera.
Dómari var Howard Webb, Englandi. Góður.
Lokastaðan í D-riðli:
lið stig
Spánn 9
Rússland 6
———————
Svíþjóð 3
Grikkland 0
EM 2008 dagur 11
Ekki sérlega merkilegur bolti í dag þótt Hollendingar hafi verið flottir.
Frakkland 0-2 Ítalía
“Frakkar fara sneypuför” sagði Bjarni Fel. fyrir nokkrum árum þegar þáverandi heimsmeistarar duttu út eftir riðlakeppni á HM 2002 án þess að skora mark. Í þetta skiptið detta þeir út án þess að spila fótbolta. Ítalir voru betri í þessum leik en það segir mun meira um hörmungarspilamennsku Frakkanna. Hvorugt liðið bauð upp á nokkurn skapaðan hlut sem bent gæti til þess að það ætti eftir að gera meira á mótinu. Ítalir komast áfram en Frakkar eru úr leik.
Dómari var Lubos Michel, Slóvakíu. Þokkalegur, og hafði hárrétt fyrir sér með vítið og rauða spjaldið á Abidal.
Holland 2-0 Rúmenía
Hér var annað uppi á teningnum því Rúmenar féllu að minnsta kosti með sæmd. Þetta er mjög gott lið og þá vantaði bara herslumuninn til að vinna bæði Ítali og Frakka. Það gekk ekki og því fór sem fór. Hollendingar voru alveg pottþéttir og héldu bara áfram að sýna hvað þeir geta þrátt fyrir að skipta nánast öllu liðinu út. Rúmenar eru þar með fallnir úr keppni.
Dómari var Massimo Busacca, Sviss. Fínn.
Lokastaðan í C-riðli:
lið stig
Holland 9
Ítalía 4
——————-
Rúmenía 2
Frakkland 1
EM 2008 dagur 10
Þá kláraðist B-riðill, nokkuð eftir bókinni úr því sem komið var.
Austurríki 0-1 Þýskaland
Þjóðverjar kláruðu það sem þurfti að klára, rétt eins og þeir eru frægir fyrir að gera, en það var svo sem ekki mikið varið í þennan leik þannig séð. Markið sem Ballack skoraði var þó svo stórkostlegt að það má mikið vera ef það verður ekki mark keppninnar. Austurríkismenn börðust allan tímann og geta verið stoltir af sinni frammistöðu á mótinu. Þjóðverjar komast áfram en Austurríkismenn eru úr leik.
Dómari var Manuel Enrique Mejuto Gonzalez, Spáni. Þokkalegur en Austurríkismenn áttu að fá víti í fyrri hálfleik og senan þegar þjálfararnir voru sendir upp í stúku var í meira lagi furðuleg.
Pólland 0-1 Króatía
Varalið Króata var miklu sterkara en pólska liðið sem virðist alveg hafa tapað áttum eftir fyrsta leikinn. Þetta var engan veginn spennandi leikur því Króatarnir nenntu ekki að sýna virkilega hvað í þeim bjó og Pólverjarnir voru búnir að gefast upp. Króatar geta miklu meira en þeir gerðu hér og það verður mjög spennandi að sjá þá í 8 liða úrslitunum. Pólverjar eru þar með fallnir úr keppni.
Dómari var Kyros Vassaras, Grikklandi. Sæmilegur en flautaði allt of mikið á tittlingaskít.
Lokastaðan í B-riðli:
lið stig
Króatía 9
Þýskaland 6
———————
Austurríki 1
Pólland 1
EM 2008 dagur 9
Ótrúlegur hasar í öðrum leiknum og ótrúlegt áhugaleysi í hinum.
Tékkland 2-3 Tyrkland
Fyrri og seinni hálfleikur voru eins og dagur og nótt, Tékkar áttu allan fyrri hálfleikinn og höfðu 1-0 yfir í hléi. Sá seinni var svo sýnikennsla í því hvernig á að henda frá sér unnum leik, því þótt Tyrkir hafi verið betri allan þann hálfleik komust Tékkar í 2-0 þegar innan við hálftími var eftir og áttu ekki að geta misst leikinn niður. Endirinn var þvílíkur farsi að annað eins hef ég sjaldan séð, jöfnunarmark Tyrkjanna skrifast algerlega á Petr Cech markvörð sem annars gerir aldrei mistök og svo til að fullkomna vitleysuna lét Tyrkneski markvörðurinn reka sig út af örstuttu eftir að þeir komust í 3-2 fyrir alveg botnlausa heimsku. Tékkarnir voru svo samanbrotnir þegar það gerðist að þeir náðu ekki einu sinni skoti til að prófa hvað sóknarmaður gæti í marki (því Tyrkirnir voru búnir með skiptingarnar líka). Tyrkir komast áfram en Tékkar falla úr keppni.
Dómari var Peter Frojdfeldt, Svíþjóð. Hefur greinilega tekið sig saman í andlitinu eftir síðasta leik sem hann dæmdi því þarna var hann nokkuð góður, náði meira að segja að halda stjórn á endinum sem var ekki auðveldur að eiga við.
Sviss 2-0 Portúgal
Þessi leikur skipti engu máli því Portúgalar voru búnir að vinna riðilinn og Svisslendingar voru þegar fallnir út og það sást á liðsuppstillingunni, Portúgalar gerðu 8 breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Munurinn á liðunum var hins vegar aðallega sá að Svisslendingar spiluðu fótbolta á meðan Portúgalar héldu að þeir væru komnir í frí, það eina sem þeir lögðu til málanna voru misheppnaðar boltakúnstir og svo auðvitað dýfur og væl í dómaranum. Eftir hikstandi byrjun þar sem Portúgalir fengu nokkur færi voru Svisslendingar miklu betri og áttu sigurinn fyllilega skilinn. Það gátu stórstjörnurnar ekki sætt sig við og fengu spjöld fyrir nöldur, væl og vitleysu sem gætu alveg kostað þá vandræði seinna í keppninni.
Dómari var Konrad Plautz, Austurríki. Mjög illa með á nótunum, sleppti víti á Svisslendinga í byrjun og stuttu seinna fékk Paulo Ferreira aðeins gult spjald fyrir ljótustu tæklingu mótsins til þessa þar sem hundaheppni réð því að ekki brotnuðu bein. Rautt spjald og 5 leikja bann hefði verið eðlilegt. Of seinn að byrja að spjalda Portúgalina fyrir nöldur.
Lokastaða í A-riðli:
lið stig
Portúgal 6
Tyrkland 6
———————
Tékkland 3
Sviss 3
EM 2008 dagur 8
Mótið tekur á sig skýrari mynd með hverjum deginum sem líður, eitt lið komst áfram og annað datt út.
Svíþjóð 1-2 Spánn
Ekkert sérstaklega merkilegur leikur frekar yfirleitt þegar þetta sænska lið spilar. Þeir eru svakalega sterkir en það er enginn glans á leiknum (nákvæmlega það sama og margir hafa kvartað yfir hjá Þjóðverjum árum saman), þeir halda bara sínu skipulagi hvað sem á gengur. Fyrir þá sem halda með þeim er þetta auðvitað frábært en hefur þann galla að drepa niður hraða og tilþrif. Í heildina voru Spánverjar mun sterkari og það er gaman að sjá að þeir geta líka klárað svona brasleiki þar sem þeir fá ekki að brillera með boltann. Svíar geta alveg farið langt ef þeir tryggja sig áfram á móti Rússum en þeir virðast fljótt á litið nokkuð jafnir Svíunum að getu. Spánverjar eru þar með komnir áfram.
Dómari var Pieter Vink, Hollandi. Frekar óöruggur og sleppti meðal annars kláru víti á Svíana.
Grikkland 0-1 Rússland
Það var viðbúið að þegar Svíarnir voru búnir að leysa ráðgátuna um það hvernig ætti að vinna Grikki myndu þeir ekki ná meira flugi í keppninni, þeim hentar engan veginn að þurfa að spila sóknarleik í staðin fyrir að hanga á núllinu og vona að þeir grísi inn einu marki á 86. mínútu úr sinni fyrstu sókn. Það var fullt af færum í þessum leik og hann hefði getað farið hvernig sem var en það kom greinilega í ljós að Grikkir áttu ekkert raunverulegt varaplan til að nota ef hitt brygðist. Þetta rússneska lið er ágætt, hvað sem Spánverjaleiknum leið, og þeir geta alveg komist eitthvað lengra áfram. Grikkir eru þar með fallnir úr keppni.
Dómari var Roberto Rosetti, Ítalíu. Fínn.
EM 2008 dagur 7
Vá! Rosalegur dagur.
Ítalía 1-1 Rúmenía
Ítalir voru stálheppnir að sleppa með jafntefli, þótt það verði að viðurkennast að löglegt mark var tekið af þeim undir lok fyrri hálfleiks. Rúmenar voru það mikið betri auk þess að klúðra víti í lokin að þeir áttu bara að klára þetta ítalska lið af öryggi. Mörkin komu með mínútu millibili, Rúmenar fyrst og svo jöfnuðu Ítalir. Rúmenar hafa sýnt það að þeir eru með fínt lið og hefðu með smá heppni getað unnið báða leikina sína hingað til, núna þurfa þeir að taka stig af Hollendingum til að komast áfram.
Dómari var Tom Ovrebo, Noregi. Mjög góður fyrir utan eitt verulega slæmt klúður sem gæti kostað hann tækifærið til að dæma fleiri leiki á mótinu. Luca Toni skoraði með skalla og var réttstæður svo munaði örugglega metra en markið var dæmt af.
Holland 4-1 Frakkland
Hollendingar keyrðu einfaldlega yfir Frakka. Á stórum flutningabíl. Með tíu tengivagna í röð. Og hlass af skriðdrekum á hverjum vagni. Þótt staðan hafi lengi verið 1-0 og Frakkar svo náð að minnka muninn í 2-1 þá var þessi leikur alltaf eins ójafn og tölurnar gefa til kynna. Annað hvort eru bæði Ítalir og Frakkar með ótrúlega lélegt lið á þessu móti eða Hollendingar eru brjálæðislega sterkir, ég hallast frekar að seinni möguleikanum. Þetta þýðir að Frakkar og Ítalir endurtaka úrslitaleikinn frá HM nema í þetta skiptið snýst hann um hvort liðið kemst kannski upp úr riðlinum. Hollendingar eru þar með komnir áfram.
Dómari var Herbert Fandel, Þýskalandi. Pottþéttur.
EM 2008 dagur 6
Fyrstu raunverulega óvæntu úrslitin og fyrsta rauða spjaldið í mótinu komu í fyrri leiknum og mótsmet var sett í seinni leiknum. Flottur dagur!
Króatía 2-1 Þýskaland
Það var ótrúlegt að sjá þetta þýska lið sem var svo kröftugt á móti Pólverjum spila eins og byrjendur á móti Króötum. Og sama á við um Króata sem gætu vel unnið mótið ef þeir halda áfram að spila svona en voru eins og aumingjar á móti Austurríkismönnum sem hefðu átt að vinna þann leik auðveldlega. Króatar voru allan tímann miklu betri og hefðu getað unnið stærri sigur svo það verður gaman að sjá hvað þeir gera í framhaldinu. Þjóðverjar verða að taka sig á ef Austurríkismenn eiga ekki að senda þá heim í síðustu umferð riðilsins. Króatar eru þar með komnir áfram.
Dómari var Frank De Bleeckere, Belgíu. Fínn í 89 mínútur en missti svo allt niður um sig í lokin. Rauða spjaldið sem Bastian Schweinsteiger fékk var að vísu hárrétt en ef eitthvert samræmi hefði verið hefði Jerko Leko líka fengið rautt spjald fyrir sama atvik og svo Luka Modric mínútu seinna fyrir glórulausa tæklingu.
Austurríki 1-1 Pólland
Ég held að það sé ekki nokkur spurning að Pólverjar ættu að útvega Boruc markverði heiðursmerki fyrir að draga þá í gegn um þennan leik, ef hans hefði ekki notið við hefðu Austurríkismenn verið 3-0 yfir eftir 15 mínútur. Mark Pólverja var fullkomlega gegn gangi leiksins, þeir skoruðu úr einu sókninni sem þeir komust í í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn var jafnari og Macho í markinu hjá Austurríki fékk loksins tækifæri til að sýna að hann kynni líka að verja skot. Jöfnunarmarkið kom svo úr víti í uppbótartíma og var það minnsta sem Austurríkismenn áttu skilið að fá úr þessum leik. Ivica Vastic tók vítið og varð þar með elsti leikmaðurinn (næstum 39 ára) til að skora í úrslitakeppni Evrópumóts.
Dómari var Howard Webb, Englandi. Yfirleitt öruggur en mark Pólverja var ólöglegt vegna rangstöðu og Austurríkismenn áttu að fá víti um miðjan seinni hálfleik sem hefði líka þýtt rautt spjald fyrir Pawel Golanski. Vítið sem Austurríkismenn fengu var hinsvegar hárrétt.
EM 2008 dagur 5
Fyrsta liðið er komið áfram í 8 liða úrslit og það fyrsta fallið út. Hvorugt var verðskuldað.
Tékkland 1-3 Portúgal
Tékkar fóru herfilega að ráði sínu í leik sem þeir áttu að vinna. Fyrsta mark Portúgala var hundaheppni og þótt Tékkar hafi svo að segja verið einir á vellinum fram að hléi náðu þeir ekki að gera meira en að jafna. Í seinni hálfleik var vörn Tékka steinsofandi þegar Portúgalar komust yfir og þriðja markið kom í blálokin þegar Tékkar voru allir komnir fram. Portúgalir eru þar með komnir áfram.
Dómari var Kyros Vassaras, Grikklandi. Þokkalegur en bar of mikla virðingu fyrir Portúgölum. Þó ekki eins mikla og fréttamenn RÚV…
Sviss 1-2 Tyrkland
Svisslendingar komust verðskuldað yfir í sundlauginni í Basel og voru mun betri fram að hálfleik. Tyrkir pressuðu í byrjun seinni hálfleiks og náðu að jafna en eftir það sóttu Svisslendingar stíft. Tyrkir stálu svo sigrinum á síðustu mínútu en voru alls ekki góðir í þessum leik. Það hlýtur að teljast ólíklegt að þeir hafi nokkuð í Tékkana þegar þessi lið mætast í síðustu umferðinni í hreinum úrslitaleik um hvort liðið kemst áfram. Svisslendingar eru þar með fallnir úr keppni.
Dómari var Lubos Michel, Slóvakíu. Góður við erfiðar aðstæður.
EM 2008 dagur 4
Þá hafa öll liðin fengið eitt tækifæri til að sýna hvað þau geta svo nú ætti að vera hægt að ráða eitthvað í framhaldið.
Spánn 4-1 Rússland
Þessi leikur hefði hæglega getað endað 8-6 eða eitthvað þaðan af galnara, það verður bara að viðurkennast að Spánverjar hafa bestu sókn í keppninni. Rússar voru alls ekki eins slæmir og tölurnar gefa til kynna og geta auðveldlega komist áfram með Spánverjum en til þess verða þeir auðvitað að vinna bæði Svía og Grikki. Spánverjar eiga að rúlla þessum riðli upp með vinstri eins og þeir spiluðu í dag. Það er ekki oft sem markmenn lenda í því að fá á sig fjögur mörk í leik þar sem þeir spila mjög vel!
Dómari var Konrad Plautz, Austurríki. Mjög góður yfirleitt en bar aðeins of mikla virðingu fyrir Spánverjum.
Grikkland 0-2 Svíþjóð
Þetta var dæmigerður Grikkjaleikur alveg þar til Svíarnir skoruðu; vörn, Vörn og VÖRN! Grikkir eru svipaðir og fyrir fjórum árum en munurinn er sá að nú eru allir búnir að búa sig undir að mæta þeim og þeir virtust ekki hafa neitt varaplan. Um leið og Ibrahimovic skoraði var eins og allt færi fjandans til í skipulaginu hjá þeim. Hvorugt liðið sýndi svo sem merkileg tilþrif, Svíar eru auðvitað sterkir og það er ekkert létt að brjóta niður þennan gríska múr en ég á samt ekkert frekar von á að þeir komist upp úr riðlinum. Grikkirnir munu eiga erfitt uppdráttar eftir þennan leik því nú geta þeir ekki étið upp sjálfstraustið hjá liðum á sama hátt og þeir gerðu, það eru allir búnir að sjá að það þarf bara eitt mark.
Dómari var Massimo Busacca, Sviss. Mjög góður.
Spá fyrir D-riðil:
Spánn
Rússland
Svíþjóð
Grikkland
EM 2008 dagur 3
Tveir leikir eins ólíkir og dagur og nótt, annar voðalega dauður en hinn alger flugeldasýning í 90 mínútur.
Rúmenía 0-0 Frakkland
Það má segja að bæði lið hafi komið á óvart, Frakkar með því að vera ekki sterkari og Rúmenar með því að vera virkilega sterkir. Frakkar stýrðu leiknum meira og minna en Rúmenar voru samt hættulegri í sínum sóknum. Hvorugt liðið virðist líklegt til stórafreka miðað við þessa frammistöðu en hvort þeirra sem er gæti a.m.k. komist upp úr riðlinum.
Dómari var Manuel Enrique Mejuto Gonzalez, Spáni. Yfirleitt góður og mjög ákveðinn en tók samt nokkrar undarlegar ákvarðanir.
Holland 3-0 Ítalía
Þar kom loksins að því að Hollendingar mættu til leiks á stórmóti með lið sem virðist í alvörunni geta farið langt, þeir yfirspiluðu Ítali svo gersamlega að á löngum köflum var bara eitt lið sjáanlegt á vellinum. Sigurinn var fyllilega verðskuldaður og Hollendingar hljóta að fara langt, að minnsta kosti í undanúrslit. Ítalir sýndu svo sem við og við að þeir eru sterkir líka en þeir áttu ekkert skilið úr þessum leik og verða að spila betur til þess eins að komast upp úr riðlinum. Það geta þeir auðvitað vel.
Dómari var Peter Frojdfeldt, Svíþjóð. Gersamlega úti að aka! Fyrsta mark Hollendinga var svo augljós rangstaða að ALLIR nema dómarinn sáu það og almennt sleppti hann allt of mörgum aukaspyrnum úti um allan völl. Það er gott og blessað að reyna að láta leikinn fljóta en þetta var út í hött og það sem verra var að það voru mun fleiri hollensk en ítölsk brot sem voru látin óátalin. Verður að fara heim með fyrstu ferð.
En aftur kom stærsta bullið frá fréttamönnunum á RÚV. Við skulum hafa það alveg á hreinu að Ruud *ég hef ekkert jafnvægisskyn* van *rangstöðureglan gildir ekki um mig* Nistelrooy hefur ekki örðu af heiðarleika eða “fair play” nokkursstaðar í sér og ef svo væri þá væri það örugglega ekki komið frá Manchester *fótboltareglurnar eru fyrir lýðinn sem hefur ekki enska knattspyrnusambandið í vasanum* United!!!!!!! Hann sá að hann hafði ennþá séns á að skora og þess vegna hrundi hann ekki í jörðina eins og kartöflupoki. Þótt maðurinn sé ömurlegur svindlaradurgur þá er hann ekki fífl. Svo tóku þeir sem lýstu leiknum ekkert eftir klassísku Manchester United dýfunni sem hann tók 5 mínútum seinna…
Spá fyrir C-riðil:
Holland
Ítalía
Frakkland
Rúmenía
Það var svo sem auðvitað!
Að sjálfsögðu næst ekki samband við netútsendinguna hjá RÚV loksins þegar þeir senda út eitthvað sem ég nenni að horfa á…
EM 2008 dagur 2
Þá er annar leikdagur búinn. Í dag var boðið upp á talsvert meiri hasar en í gær og B-riðill lofar bara verulega góðu.
Austurríki 0-1 Króatía
Króatar voru stálheppnir, og Austurríkismenn að sama skapi skelfilegir klaufar. Eftir að Króatar komust yfir á 4. mínútu má næstum því segja að restin af leiknum hafi farið fram í vítateig Króata. Þetta Austurríska lið er aldeilis ekkert gúmmí eins og menn héldu. Hvorugt liðið er svo sem sérlega líklegt til stórafreka en þó veit maður aldrei.
Dómari var Pieter Vink, Hollandi. Mjög góður fyrir utan eitt atvik þar sem Pogatetz og Olic áttu báðir að fá gult spjald (og Pogatetz þar með rautt), Pogatetz fyrir brot og Olic fyrir leikaraskap. Vítið sem Króatar skoruðu úr var alveg pottþétt.
Þýskaland 2-0 Pólland
Hér mættust klárlega tvö sterkustu liðin í þessum riðli, það má mikið vera ef Pólverjar fylgja ekki Þjóðverjum upp þrátt fyrir tapið í dag. Þjóðverjar voru gríðarlega öflugir og hljóta að fara að minnsta kosti í undanúrslit en Pólverjar harðneituðu að láta valta yfir sig. Glæsilegur fótbolti hjá báðum liðum.
Dómari var Tom Ovrebo, Noregi. Pottþéttur.
Spá fyrir B-riðil:
Þýskaland
Pólland
Króatía
Austurríki
EM 2008 dagur 1
Þá er næst skemmtilegasta fótboltamót í heimi byrjað! Tveir leikir í dag og þótt þetta verði að teljast tiltölulega róleg byrjun þá er ekki spurning að það verður mikið fjör næstu daga og vikur.
Sviss 0-1 Tékkland
Tékkar voru ekkert sérstaklega sannfærandi en höfðu það, Svisslendingar eru trúlega mjög fúlir því þeir voru betra liðið lengi framan af. Svisslendingar eru náttúrlega á heimavelli og fá smá aukabensín þess vegna, það getur vel verið að þeir sýni sæmilega takta í mótinu en komast þó varla upp úr riðlinum. Til þess eru mótherjarnir of sterkir. Tékkar eru auðvitað góðir en þeir verða að spila betur en þetta ef þeir ætla að komast lengra en í 8 liða úrslit.
Dómari var Roberto Rosetti, Ítalíu. Nokkuð góður lengst af en sleppti algerlega augljósri vítaspyrnu á Tékkana fyrir hendi á Ujfalusi í stöðunni 0-0.
Portúgal 2-0 Tyrkland
Portúgalir voru enn síður sannfærandi en Tékkarnir og gátu þakkað dómaranum og klaufaskap Tyrkjanna fyrir sigurinn. Tyrkir voru mjög grimmir allan leikinn og þótt Portúgalir hafi þannig séð verið betra liðið þá gerðu þeir ekkert úr því. Í fyrra markinu var annar miðvörður Tyrkjanna í berjamó og það síðara kom á síðustu mínútu þegar Tyrkir sóttu augljóslega á fullu. Bæði lið þurfa að bæta sig mikið ef þau ætla sér eitthvað á þessu móti. Christiano *ofmetni vælukjói* Ronaldo sást varla fyrir utan eina aukaspyrnu og einn sprett upp miðjuna.
Dómari var Herbert Fandel, Þýskalandi. Átti mjög slæman leik miðað við hvað hann gerir venjulega, í stöðunni 1-0 sleppti hann augljósri vítaspyrnu á Portúgal fyrir tæklingu aftan frá inni í teig, aukaspyrnu á Portúgal rétt utan teigs fyrir viljandi hendi og svo slapp einn Tyrkinn með illa tímasetta tveggja fóta tæklingu sem mátti alveg sýna spjald fyrir. Þó slapp Fandel nú betur frá leiknum en lýsararnir á RÚV sem voru trúlega að horfa á einhvern allt annan leik. Þar að auki voru þeir svo ævintýralega hlutdrægir að þeir hefðu átt að vera í Portúgölskum búningi.
Spá fyrir A-riðil (út frá þessum degi einum auðvitað, breytist svo þegar meiri upplýsingar fást):
Tékkland
Portúgal
Tyrkland
Sviss
Þetta er verra en 14-2!
Að tapa fyrir Liechtenstein er ekki verjandi, hvað þá að tapa 3-0. Allt minna en að rótbursta svona lið með fjórum til fimm mörkum er lélegt, að tapa fyrir þeim er óafsakanlegt. Að ekki aðeins tapa heldur vera rassskelltir þýðir ósköp einfaldlega að nú er kominn tími til að reka þjálfarann með skömm og það sem meira er að nýr þjálfari skipti út mannskap. Þetta gengur einfaldlega ekki.