Karitas kom með mér í golf í morgun! Við vorum á æfingagreeninu í rúman klukkutíma og ég gat ekki betur séð en að henni fyndist gaman allan tímann. Auðvitað vorum við bara að fíflast með tvo bolta, pútter og plastkylfu sem hún á og mikið af tímanum fór í eltingaleik og rannsóknir á öllu mögulegu spennandi sem hægt er að sjá á golfvelli en hún var líka talsvert í því að prófa að koma boltanum í holuna. Svo fórum við í golfskálann og Karitas fékk djús. Gerist ekki betra! Ég spái því að hún vinni mig fyrir 10 ára aldurinn…
Category Archives: Golf
Þar kom loksins að því að veðrið minnir eitthvað á vor…
Og þótt fyrr hefði verið. GOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOLLLLLLLLLLLLLLFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFF!!!
Hvað á þetta rugl eiginlega að þýða?
Dag eftir dag vaknar maður og lítur út um gluggann á alhvíta jörð! Ég hef ekkert á móti snjó á veturna og vil gjarnan hafa hann á skíðasvæðum en þetta er algert rugl. Ég vil fara að komast í golf!!!
Og enn bíða þeir!
Það hefur rignt stanslaust í allan dag í Wales þar sem mótið er og enginn hefur slegið högg síðan um 10 í morgun! Þeir verða að þessu fram að jólum…
Ryder bikarinn!!!
Þá er hann kominn í gang, og eins og virðist alltaf gerast þá var leik frestað vegna rigningar eftir 2 tíma! Það var nú elskulegt af veðrinu, þetta þýðir að ég næ að sjá meira af keppninni í beinni. Skemmtilegasta golfmót í heimi!
Ekkert skrifað undanfarið.
En það er vegna þess að WordPress er búið að vera í algeru rugli! Ég get varla fundið út úr því hvar á að skrifa hvað núna, allir gluggar eru í tómri vitleysu og líta eins út. Ég ætlaði að bíða þetta bara af mér en það er greinilegt að þetta er ekkert sem þeir ætla að laga í hvelli svo ég verð þá a.m.k. að útskýra hvernig á hléinu stendur.
Annars er ég ekki líklegur til að skrifa mjög mikið hér yfir sumarið hvort sem er, allt of mikið að gera úti á golfvelli!
Í framhaldi af síðustu færslu…
Mér finnst nauðsynlegt að taka það fram að þegar Karitas vaknaði í morgun náði hún strax í nýja golfsettið
Sumargjöfin lítur út fyrir að hafa slegið í gegn!
Gleðilegt sumar!
Þá er (samkvæmt skilgreiningu sem oft virðist snargalin þegar litið er til veðurs) komið sumar og hvað haldið þið nú að Karitas hafi fengið í sumargjöf? Tvo bolta og………………GOLFSETT! Það er ekki seinna vænna að byrja, hún er rúmlega eins og hálfs árs!
Það er golf í lofti! Og smá aska…
Nú eru bara nokkrar vikur í að golfsumarið komist í fullan gang og þá kemur í ljós hverjir hafa verið duglegir að æfa í vetur. Opnunarmótið í Grafarholtinu er 15 maí og ég get ekki beðið! FOOOOORE!!!
Og þá byrjar það!
Það er ekki seinna vænna að byrja að undirbúa næsta sumar í golfinu. Kennsla núna í hádeginu, sjáum hvernig þetta lítur út.
Merkilegt!
Það þekkja það flestir hvað það getur verið undarlegt að heyra sína eigin rödd á upptöku, hún hljómar undantekningalítið allt öðruvísi en maður hélt. Að sjá video upptöku af sinni eigin golfsveiflu er eiginlega enn merkilegra að mörgu leyti, það sem maður hélt að væri inn er út og það sem maður hélt að væri stutt er langt! Og eftir að ég fór í kennslu í dag hef ég fyrirmæli um að æfa inn í sveifluna nokkuð sem ég hélt að væri of mikið af í henni nú þegar. Myndirnar segja allt aðra sögu svo ég geri bara eins og kennarinn segir en ég átti álíka mikið von á þessu og að heyra næringarfræðing segja að ég borði of mikið grænmeti!
Ammli!!
Og Guðný og Karitas gáfu mér nýja svaka flotta golfskó í afmælisgjöf! Örugglega bestu golfskór sem ég hef átt, ég er búinn að taka eina stutta púttæfingu í þeim núna í hádeginu og það er ótrúlegt hvað þeir eru þægilegir. Nú verð ég svakalega góður í sumar!
Það var þá allur dagurinn
Það hlýtur að vera undarleg tilfinning að koma út á golfvöll annan dag móts og eiga að byrja í bunker einhversstaðar úti á miðjum velli! Þetta verður spennandi mót…
Svakalegt ástand!
Mikið svakalega held ég að keppendur á US Open séu þakklátir fyrir slagviðrið sem bjargaði þeim frá þessum brjálæðislega velli. Þó ekki sé nema í smá stund…
Klukk!
Þar kom að því að ég var klukkaður í fyrsta skipti á mínum bloggferli. Guðný klukkaði mig og hafi ég skilið reglurnar rétt á ég að skrifa tíu staðreyndir um sjálfan mig. Það er ekki ljóst hvort staðreyndirnar eiga að vera eitthvað sem enginn/fáir vita eða hvort þær eiga bara að vera skemmtilegar svo ég læt bara eitthvað vaða:
Ég er alveg rosalegt sportidjót eins og það er oft kallað, það skiptir næstum því engu máli hvaða íþrótt það er eða hver/hverjir/hverjar eru að keppa, ég er alltaf til í að fylgjast með. Og já, það þýðir að ég myndi kveikja á sjónvarpinu til að horfa á beina útsendingu frá þriðjudeildarfótbolta í Miðbaugs Guineu ef ég hefði ekkert þarfara við tímann að gera. En það skal nú tekið fram að ég hef oft eitthvað þarfara við tímann að gera…
Ég er algerlega forfallinn golfari þótt það hafi nú ekki borið mikið á golfiðkun undanfarin tvö ár. Ég kem með mikið comeback næsta sumar…
Ég er nörd. Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég sé blómkálshaus er ekki hvað mig langi mikið í blómkál (þótt mér þyki blómkál mjög gott) heldur hvað fraktalstrúktúrinn í því sé flottur.
Mér finnst rosalega gaman að rífa tölvuna mína í sundur og setja hana svo saman aftur. Og hún virkar á eftir.
Og þegar ég fer í sund, í ræktina eða á einhvern annan stað þar sem maður setur fötin sín eða annað í númeraðan skáp finnst mér skítt ef talan er ekki prímtala.
Ég get drukkið gríðarlegt magn af kóki (Alvöru kóki. Ekki diet, ekki zero, ekki light og ekki Pepsi. Já ég finn muninn.) á svakalega stuttum tíma.
Besti matur í heimi er risastór blóðug nautasteik með piparsósu. Ég gæti borðað nautasteik í hvert mál. Á hverjum degi. Alltaf.
Ég á allar Star Wars myndirnar á DVD, þær eldri á ég líka á VHS. Ég á líka tónlistina úr öllum myndunum á samtals 9 geisladiskum. Ég giska á að ég hafi (að meðaltali) séð þær svona 10 sinnum hverja.
Ég vinn lang best í skorpum, get stundum afkastað meiru á þremur dögum en þremur vikum þar á undan.
Ég er búinn að panta nýjustu Harry Potter bókina svo hún bíði eftir mér í bókabúðinni á laugardaginn.
Ég held ég sleppi því að klukka, það eru hvort sem er næstum allir búnir að svara þessu.
GOOOOOOOOOOLF!!!!:)
Ég fór í golf áðan í því stórmerkilega fyrirbæri “Copenhagen Indoor Golf Center”. Þetta er gömul skipasmíðastöð eða eitthvað slíkt sem hefur verið breytt í stærstu innanhúss golfæfingaaðstöðu í heimi! Því verður víst seint haldið fram að þetta líti vel út en aðstaðan er góð, að vísu slær maður í net en það er 130m frá svo maður sér boltann fljúga aðeins áður en netið tekur við honum. Og það var ekki laust við að ég sæi boltana sveigja í hinar undarlegustu áttir þegar ég veifaði stóru sleggjunni af öllu afli. Ég hefði sennilega mátt eiga von á að þurfa að leita lengi í þeim undarlegu frumskógum sem yfirleitt umlykja golfvelli, fullir af ósýnilegum dýrum sem stela golfboltum…
Nei sko, bloggsíðan mín!
Nei ég er ekki hættur að blogga, ég er bara kominn til Íslands og þá er ekki lengur eins mikil þörf á reglulegum skrifum (finnst mér a.m.k.) auk þess sem það er ýmislegt annað sem ég hef ekki gert lengi (GOLF!!!!!) sem þarf að endurnýja kynnin við. Og svo var það heimsmeistarakeppnin en hana á ég eftir að gera rækilega upp hér þar sem engum verður hlíft:P!
Ha, skóli?
Blokk fjögur byrjar í dag og allt í einu þarf ég að fara að mæta í skólann aftur eftir fjögurra vikna afslöppun (lesist: LETI). Ég ætla að taka kúrs um stjörnumyndun og svo er ég raunar enn að velta fyrir mér hvort ég ætla að taka kúrs um plánetueðlisfræði eða um “Quantum Optics and Quantum Information”. Ég ætla að kíkja á þennan kvantakúrs í dag og sjá hvernig mér líst á. Ef hann er spennandi þá tek ég hann frekar, ég held að hann sé meiri “alvöru” masterskúrs, það gæti verið vesen að fá hinn samþykktan. Það er ekki útilokað að þetta verði síðustu tveir kúrsarnir sem ég tek, eftir þetta verða kannski bara rannsóknarverkefni!
Ég er að verða galinn af golfskorti, hef ekki komist ennþá en það fer að styttast í að ég drífi mig bara hvort sem ég kemst eða ekki:P FORE!!!
Ekkert golf í dag:(
Ég endaði á að fara ekkert í golf í dag, ég þurfti eiginlega að gera meira í verkefninu mínu og svo var rigning. Þið megið alveg ráða hvora ástæðuna þið teljið hafa haft meiri áhrif en lokaniðurstaðan er sú sama. Það styttist þó óðum í að hafnar verði barsmíðar ægilegar, mér til skemmtunar og golfboltunum mínum til skelfingar! Bwahahahahahaha!!!!!
Ég hlakka til á morgun…
Og gleðilegt sumar!
Það stendur nú ekki til að breyta þessari síðu í svona tyllidagablogg þar sem ekkert gerist nema við sérstök tækifæri en hér kemur samt sumarkveðja. Það er ágætis tilbreyting að vera einu sinni í sumarveðri á sumardaginn fyrsta en ekki hagléli eins og ég man að byrjaði einu sinni í þriðja takti af “Ó blessuð vertu sumarsól”!
Það er verst hvað svona veður hefur slæm áhrif á einbeitingu…
Ég ætla í golf á morgun, hér verður gefin nákvæm skýrsla eins og vera ber!