Ég hef sjaldan verið eins stoltur af að styðja Leeds United og í dag.
Category Archives: Íþróttir
Þar kom að því að landsliðið yrði tekið alvarlega!
Það er orðið langt síðan ég varð eins ánægður með nokkurn skapaðan hlut í kring um íslenska karlalandsliðið í fótbolta og ég er með nýja þjálfarann. Ekki aðeins vegna þess að þetta er augljóslega toppþjálfari með svakalega reynslu sem á örugglega eftir að rífa liðið upp á rassgatinu heldur lét hann sænska liðið alltaf spila nákvæmlega þá gerð af fótbolta sem íslenska liðið verður að spila. Það skein alltaf í gegn að fyrsta prioritet var að erfitt væri að brjóta liðið niður og engin aulamistök gerð. Það var aldrei nett sérlega gaman að horfa á sænska liðið spila en það var rosalega effektíft (og er enn). Ef hann getur breytt 0-0 í 1-0, 0-2 í 0-0 og 0-4 í 0-1 þá er mér alveg sama þótt spilið verði ekkert augnayndi. Þetta snýst um að VINNA. Svo er ekki síður flott að núna er íslenska landsliðið með þjálfara sem er þekktari en allir leikmennirnir nema einn, svo ef einhverjir stjörnustælar hafa verið að skemma fyrir undanfarin ár ættu þeir hér og nú að heyra sögunni til. Það er á hreinu að ef einhverjir eru með vesen þá verða þeir einfaldlega ekki í liðinu og geta engum um kennt nema sjálfum sér.
Ég hlakka til!!
Næsta kynslóð komin af stað!
Karitas kom með mér í golf í morgun! Við vorum á æfingagreeninu í rúman klukkutíma og ég gat ekki betur séð en að henni fyndist gaman allan tímann. Auðvitað vorum við bara að fíflast með tvo bolta, pútter og plastkylfu sem hún á og mikið af tímanum fór í eltingaleik og rannsóknir á öllu mögulegu spennandi sem hægt er að sjá á golfvelli en hún var líka talsvert í því að prófa að koma boltanum í holuna. Svo fórum við í golfskálann og Karitas fékk djús. Gerist ekki betra! Ég spái því að hún vinni mig fyrir 10 ára aldurinn…
Og enn bíða þeir!
Það hefur rignt stanslaust í allan dag í Wales þar sem mótið er og enginn hefur slegið högg síðan um 10 í morgun! Þeir verða að þessu fram að jólum…
Ryder bikarinn!!!
Þá er hann kominn í gang, og eins og virðist alltaf gerast þá var leik frestað vegna rigningar eftir 2 tíma! Það var nú elskulegt af veðrinu, þetta þýðir að ég næ að sjá meira af keppninni í beinni. Skemmtilegasta golfmót í heimi!
Eru Norðmenn hættir að kunna að smyrja skíði???
Það er ótrúlegt að horfa á 4x10km boðgönguna á Ólympíuleikunum sem er í gangi núna. Annar maður hjá Norðmönnum lítur ekki út fyrir að renna nokkurn skapaðan hlut, og norsku keppendurnir hafa kvartað alla leikana yfir lélegum skíðum. Þeir skipta svo í 6. sæti, á eftir Kazhakstan! Þeir eru með brjálæðislegan endasprettsmann en þetta er út í hött…
Það er af sem áður var!
Ég man eftir að hafa horft á útsendingar frá Ólympíuleikum þar sem enginn Íslendingur sást í sjónvarpi, alla leikana á enda. Þegar þetta er skrifað hafa tveir Íslendingar gert eitthvað í Vancouver og báðir voru sýndir frá upphafi til enda. Þeir störtuðu annar og þriðji síðasti í risasvigi sem hvorugur leggur mikla áherslu á (enda engin aðstaða til að æfa það hér), í glerharðri og stórhættulegri braut og stóðu sig bara virkilega vel. Þeirra aðalgreinar koma á næstu dögum og nú eru þeir komnir í gang.
En það er rosalega gott að skipuleggendur Ólympíuleika eru búnir að átta sig á því að það vilja allir geta fylgt sínu fólki, jafnvel þótt það sé ekki í baráttu um verðlaunasæti.
Nú verður ekki sofið mikið næstu tvær vikurnar!
Vetrarólympíuleikarnir eru snilld, jafnvel þótt það sé enginn snjór. Vandamálið er bara tímasetningin. Setningarathöfnin verður i beinni útsendingu klukkan tvö í nótt!
Næsta verkefni!
Handboltalandsliðið er ekki fyrr búið að klára eitt verkefni (og það heldur betur glæsilega, eins og þeirra er von og vísa) en fótboltaliðið fær úthlutað sínu næsta. Og það verður víst heldur snúnara:
H riðill:
- Portúgal
- Danmörk
- Noregur
- Kýpur
- Ísland
Kýpur eiga þeir nú að klára auðveldlega bæði heima og úti en allt hitt verður mjög erfitt. En í þessum riðli felst líka ákveðið tækifæri sem er það að tvö sterkustu liðin (Danmörk og Portúgal) eru léttspilandi og engin hörkutól (þótt það séu undantekningar í danska liðinu) og því er alveg hægt að eyðileggja þeirra spil með því að tækla þá strax fast og grimmt. Takist það er leikurinn kominn á plan sem íslenska liðið getur unnið hann á því þeir eru miklu sterkari. Það er bara svo furðulegt að þetta virðast þeir aldrei vera til í að gera nema gegn algeru ofurefli (Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Spánn svo nokkur dæmi séu nefnd) en renna svo á rassinn á móti mun lélegri liðum. En kannski er komið að því að þeir átti sig á þessu, hver veit?
Bwahahahaha!!!
Og þar lágu Danir enn verr í því! Gott á þá!
Og ekki sluppu Rússar betur!
Svo þarf bara að mæta brjálaðir í leikinn við Norðmenn og þá eru undanúrslitin klár!
Þar lágu Danir í því!
Svona á að spila handbolta! Ekki þetta rugl með að halda að leikurinn sé búinn þegar eru fimm mínútur eftir og forystan tvö mörk. Og eftir allan hrokann sem Danir hafa stöðugt sýnt eftir hrun er margfalt skemmtilegra en nokkru sinni fyrr að vinna þá. Svo er bara að halda áfram að spila svona og þá verður þetta fínt mót.
Stórafrek!
Í dag tókum við Guðný fyrsta gráðuprófið í aikido sem er japönsk sjálfsvarnaríþrótt. Við náðum bæði prófinu með glans og erum því komin með gráðu í að henda árásarmönnum kurteislega út um gluggann! Þetta er alveg frábær íþrótt og ég hvet alla til að prófa.
Eins og áður hefur komið fram hér…
Það gerist aðeins tvisvar á ári (nema tilviljanir skerist í leikinn) að ég haldi með Liverpool í fótboltaleik. Til þess að það gerist þurfa þeir að vera að spila við Manchester United (eða KR, en hversu líklegt er það?). En í dag er einn af þessum undarlegu dögum þar sem ég myndi fara í Liverpoolbúning ef ég ætti hann til (og héldi að hann hefði einhver áhrif) til að hvetja þá áfram í að stinga á því dragúldna graftarkýli sem drullusokkarnir frá Manchester eru á íþróttinni. Leikurinn ætti a.m.k. að verða spennandi, og ef hann ætlar að fara í einhverja vitleysu get ég alltaf farið að lesa um uppsetningu á file serverum…
Merkilegt!
Það þekkja það flestir hvað það getur verið undarlegt að heyra sína eigin rödd á upptöku, hún hljómar undantekningalítið allt öðruvísi en maður hélt. Að sjá video upptöku af sinni eigin golfsveiflu er eiginlega enn merkilegra að mörgu leyti, það sem maður hélt að væri inn er út og það sem maður hélt að væri stutt er langt! Og eftir að ég fór í kennslu í dag hef ég fyrirmæli um að æfa inn í sveifluna nokkuð sem ég hélt að væri of mikið af í henni nú þegar. Myndirnar segja allt aðra sögu svo ég geri bara eins og kennarinn segir en ég átti álíka mikið von á þessu og að heyra næringarfræðing segja að ég borði of mikið grænmeti!
Það var þá allur dagurinn
Það hlýtur að vera undarleg tilfinning að koma út á golfvöll annan dag móts og eiga að byrja í bunker einhversstaðar úti á miðjum velli! Þetta verður spennandi mót…
Svakalegt ástand!
Mikið svakalega held ég að keppendur á US Open séu þakklátir fyrir slagviðrið sem bjargaði þeim frá þessum brjálæðislega velli. Þó ekki sé nema í smá stund…
Klukk!
Þar kom að því að ég var klukkaður í fyrsta skipti á mínum bloggferli. Guðný klukkaði mig og hafi ég skilið reglurnar rétt á ég að skrifa tíu staðreyndir um sjálfan mig. Það er ekki ljóst hvort staðreyndirnar eiga að vera eitthvað sem enginn/fáir vita eða hvort þær eiga bara að vera skemmtilegar svo ég læt bara eitthvað vaða:
Ég er alveg rosalegt sportidjót eins og það er oft kallað, það skiptir næstum því engu máli hvaða íþrótt það er eða hver/hverjir/hverjar eru að keppa, ég er alltaf til í að fylgjast með. Og já, það þýðir að ég myndi kveikja á sjónvarpinu til að horfa á beina útsendingu frá þriðjudeildarfótbolta í Miðbaugs Guineu ef ég hefði ekkert þarfara við tímann að gera. En það skal nú tekið fram að ég hef oft eitthvað þarfara við tímann að gera…
Ég er algerlega forfallinn golfari þótt það hafi nú ekki borið mikið á golfiðkun undanfarin tvö ár. Ég kem með mikið comeback næsta sumar…
Ég er nörd. Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég sé blómkálshaus er ekki hvað mig langi mikið í blómkál (þótt mér þyki blómkál mjög gott) heldur hvað fraktalstrúktúrinn í því sé flottur.
Mér finnst rosalega gaman að rífa tölvuna mína í sundur og setja hana svo saman aftur. Og hún virkar á eftir.
Og þegar ég fer í sund, í ræktina eða á einhvern annan stað þar sem maður setur fötin sín eða annað í númeraðan skáp finnst mér skítt ef talan er ekki prímtala.
Ég get drukkið gríðarlegt magn af kóki (Alvöru kóki. Ekki diet, ekki zero, ekki light og ekki Pepsi. Já ég finn muninn.) á svakalega stuttum tíma.
Besti matur í heimi er risastór blóðug nautasteik með piparsósu. Ég gæti borðað nautasteik í hvert mál. Á hverjum degi. Alltaf.
Ég á allar Star Wars myndirnar á DVD, þær eldri á ég líka á VHS. Ég á líka tónlistina úr öllum myndunum á samtals 9 geisladiskum. Ég giska á að ég hafi (að meðaltali) séð þær svona 10 sinnum hverja.
Ég vinn lang best í skorpum, get stundum afkastað meiru á þremur dögum en þremur vikum þar á undan.
Ég er búinn að panta nýjustu Harry Potter bókina svo hún bíði eftir mér í bókabúðinni á laugardaginn.
Ég held ég sleppi því að klukka, það eru hvort sem er næstum allir búnir að svara þessu.
Nei, ég er ekki týndur í ormagöngum!
Undanfarna daga hef ég bara verið þaulsætinn fyrir framan tölvuna í einu af þessum óhjákvæmilegu “ég klára aldrei þetta verkefni” köstum og þá bloggar maður víst ekki mikið. Svo þegar maður áttar sig á því (eins og núna áðan) að þetta er mesti misskilningur og verkefnið stendur raunar bara ágætlega kemur að því að blogga aftur. Ég hef svo sem ekki gert mikið annað en að læra síðan síðast, ég spilaði þó fótboltaleik á sunnudaginn og má sjá skýrslu um hann á fótboltasíðunni. Þá dró til tíðinda í gærkvöldi þegar hópur starfsmanna og nema í Dark Cosmology Centre drifu sig út í Fælledparken sem er hér rétt hjá til að taka þátt í hlaupi til styrktar barnadeild “Riget” sem er okkar næsti nágranni (Böööööööööhhh!
). Það var mjög athyglisvert að sjá samsetninguna á þessum hóp. Það voru tveir Íslendingar (hlupum bæði 10 km), Pólverji (10 km), Ástrali (skráð í 10 km en hætti við á síðustu stundu vegna meiðsla), Kínverji (5 km), Brasilíumaður (5 km), Mexíkóbúi (5 km), Spánverji (5 km) og Dani (5 km)! Þess má geta að 40-50% Darkverja eru Danir en það hlutfall skilaði sér ekki alveg… Ennfremur kom það fram hjá kynninum áður en hlaupið var ræst að það væru þátttakendur frá átta löndum, við vorum einmitt með þátttakendur frá átta löndum! Hlaupið gekk bara vel, aðstæður voru raunar nokkuð íslenskar með u.þ.b. 10°C og talsverðan blástur og það þótti Darkverjum frá heitari löndum ekkert sérstaklega þægilegt en allir komust þó í mark ófrosnir og höfðu það af að komast í pizzuveislu í boði DARK eftir hlaupið. Ég gerði þau mistök að byrja allt of hratt og mátti því berja sjálfann mig áfram af tómri þrjósku í fulla 6 kílómetra en það dugði og ég kláraði á 46:34 sem er mínútu betri tími en í Reykjavíkurmaraþoni í sumar og þar með minn besti 10 km tími frá upphafi! Nú er bara að halda áfram að æfa sig…
Leikur á morgun!
Maður verður víst að standa sig í íþróttunum fyrst restin af familíunni (takið eftir dönskum áhrifum…) er í Fossavatnsgöngunni á sama tíma. Nú skal barist til síðasta manns! Það er að segja síðasta manns sem eftir verður inni á vellinum…
Nú er sko öllu tjaldað til við að koma sér í gott form!
Ég var sko stoltur af sjálfum mér í morgun! Vaknaði rétt upp úr sjö og fór beint út að hlaupa, í hellirigningu. Eftir þetta stórskemmtilega kvef (ég er raunar enn nefmæltur, rámur og almennt ekki söngfær) verður maður nú að setja allt á fullt ikk’? Og svo er fótboltaæfing í kvöld þar sem ég mun reyna að láta ljós mitt skína svo ég fái nú eitthvað að spila á laugardaginn. Ætli sé ekki vænlegast til árangurs að reyna að sannfæra þjálfarann um að spila íslenskan bolafótbolta. Það kann ég allavega…