Það er einn spammari sem er búinn að finna bloggið mitt og mokar hér daglega inn nokkrum kílóum af kæfu. Akismet spam filter finnst kæfa góð svo þetta er ekkert vandamál, ég er ekkert of góður til a smella daglega á “Empty Spam”. En nafnið sem þessi spammari gefur upp er í hæsta máta undarlegt. Hvernig dettur spammara sem mokar inn lélegri ensku í hug að kynna sig sem “Elektrische Zahnbuerste”??? Eru rafmagnstannburstar orðnir svo háþróaðir að þeir eru komnir í auglýsingabransann?
Mér er spurn…