Græjublogg!!

Ég var að fá nýja mús fyrir vinnuna og ég hef bara aldrei kynnst öðru eins! Græjan heitir Logitech Performance MX og það er alveg á hreinu að þetta er lang besta mús sem ég hef prófað.  Enda kostar hún skildinginn, gott að vinnan borgar þetta…

Nýja Ubuntu Linux útgáfan kemur út í dag!

Og ég get ekki beðið eftir að uppfæra!  Í allt uppfæri ég þrjár tölvur; vinnutölvuna sem ég geri ráð fyrir að uppfæra strax í dag þegar hægt verður að sækja nýju útgáfuna, gömlu fartölvuna sem bíður sennilega fram að helgi þar sem ég ætla að gera talsverðar breytingar á henni og svo serverinn. Hann þarf trúlega aðeins meiri skipulagningu svo hann kemur síðast.  Og svo lofa ég að hætta þessum áróðri í bili (a.m.k. þangað til ég þarf að segja ykkur hvað nýja útgáfan er frábær…)!

Og nú styttist í næstu útgáfu af Ubuntu!

Eitt af því flottasta við Ubuntu Linux er að það kemur út ný útgáfa á 6 mánaða fresti og það er ekkert mál að uppfæra á milli þeirra.  Hver ný útgáfa kemur með alls konar nýja fídusa og stöðugri keyrslu og, eins og alltaf með Ubuntu (og lang flestar útgáfur af Linux), kostar ekki neitt!  Window$ kostar tugi þúsunda og er drasl svo valið er frekar auðvelt.  Ég hef sagt það áður og stend við það; þann dag sem tölvuleikjaframleiðendur fara að gera Linux útgáfur af öllum nýjum leikjum mun Microsoft endanlega hrynja.  Þeirra verður ekki saknað.

Þetta grunaði mig!

Það er alveg svakalegur munur á því að nota Linux á vinnutölvu og að nota Windows. Eins og ég tala nú mikið um Linux hér og annarsstaðar þá væri auðvelt að halda að ég hafi ekki notað annað í langan tíma en í raun er þetta í fyrsta skiptið sem ég færi alla vinnu yfir í Linux. Og munurinn er ótrúlegur. Tölvan vinnur miklu hraðar en með Windows á henni, er miklu stöðugri og það er allt á henni sem maður þarf að nota. Það þarf eitthvað svakalegt til að ég setji aftur upp Windows á vinnutölvu.

Meiri Linux áróður!

Fyrir þá sem nota tölvuna fyrst og fremst til að halda utan um og vinna með myndir, video eða hljóðskrár en vilja samt geta gert allt sem hægt er að gera í Windows eða Mac OS er um að gera að líta á Ubuntu Studio. Allt sem er “undir húddinu” er stillt sérstaklega til að vinna vel með þessar gerðir af skrám, með í pakkanum er hellingur af mjög öflugum tólum fyrir þessa vinnslu og allt heila klabbið kostar ekki krónu frekar en (næstum öll) önnur Linux stýrikerfi. Linkur er hér fyrir þá sem vilja skoða þetta betur.

Neinei, ég er ekkert skrýtinn!

Ég veit að ég sannfæri kannski ekki marga með því að halda því fram í bloggfærslu að það sé fullkomlega eðlilegt að sitja við fram á nótt og skrifa HTML kóða í vim (besti editor í heimi, Emacs er drasl :-D ) en ég ætla að gera það samt.  Að vísu er tímasetningin tilkomin af augljósum ástæðum (það er mun auðveldara að koma svona hlutum í verk með Karitas sofandi) en það að vera að þessu, sama hvenær er sólarhringsins, kemur mörgum undarlega fyrir sjónir.  En þetta er bara svo gaman!  Nú er ég að bæta inn myndum (parturinn sem ég geymdi þangað til síðast því af öllu sem hefur með tölvur að gera kann ég einna minnst í því að fara með myndir) og þegar það er komið, hvenær sem það nú verður, er stutt í að síðan geti farið í loftið.  Ég mun að sjálfsögðu linka á hana héðan og tilkynna með miklum fanfare…

Varúð! Nördaskapur framundan…

Það er alveg með ólíkindum hvað það er gaman að gefa skipunina rm -rf þegar maður er loggaður inn sem root á stórum Linux server.  Það er trúlega helst hægt að líkja því við tilfinninguna að klippa vír í tímsprengju þar sem maður er í sjálfu sér alveg viss um að það sé rauði vírinn en ekki sá blái sem á að klippa en eftir stendur að ef maður klippir vitlausan vír er fjandinn laus.  Svo er mikill léttir á eftir að sjá að skráarkerfið er enn á staðnum og að ekkert fór nema directoryið sem átti að henda.

Nú er bara að vona að það verði hægt að horfa hér!

Á morgun gæti verið fyrsta tækifærið mitt í mörg ár til að sjá Leeds spila, þegar þeir mæta Oldham í bikarnum.  Heimasíða enska knattspyrnusambandsins ætlar að sýna leikinn beint í ólæstum aðgangi og enn sem komið er hefur ekkert komið fram um að straumurinn verði takmarkaður við Bretlandseyjar.  Ég hlakka til!  Ef það kemur svo í ljós að leikurinn sé ekki aðgengilegur hér verð ég ekki sáttur…

Og Ubuntu 9.10 er komið!

Og þess vegna er merkið til hliðar farið.  Það er ekki hægt að hafa Coming soon! uppi þegar kerfið er komið.  Ég er búinn að uppfæra (í Xubuntu 9.10) og í fljótu bragði virðist þetta vera enn betra en 9.04 sem ég var að nota.  Besta stýrikerfi í heimi og þótt víðar væri leitað!

Snjallur…

Sumt getur látið mann efast alvarlega um eigið gáfnafar.  Til dæmis þegar maður vaknar hálf sjö (og ég slapp vel, Guðný mátti sætta sig við að vakna hálf sex!) af því að Karitas er að brýna raustina og ætlar ekki að fara aftur að sofa (og það má í sjálfu sér alltaf búast við að hún geri þetta við og við) þá virkar það ekki mjög gáfulegt eftir á að hyggja að hafa skrifað HTML kóða til hálf þrjú.

Matseðillinn í dag mun samanstanda af kaffi, kóki, súkkulaði, kóki, kaffi, kóki og svo smá kóki.

Eins og áður hefur komið fram hér…

Það gerist aðeins tvisvar á ári (nema tilviljanir skerist í leikinn) að ég haldi með Liverpool í fótboltaleik.  Til þess að það gerist þurfa þeir að vera að spila við Manchester United (eða KR, en hversu líklegt er það?).  En í dag er einn af þessum undarlegu dögum þar sem ég myndi fara í Liverpoolbúning ef ég ætti hann til (og héldi að hann hefði einhver áhrif) til að hvetja þá áfram í að stinga á því dragúldna graftarkýli sem drullusokkarnir frá Manchester eru á íþróttinni.  Leikurinn ætti a.m.k. að verða spennandi, og ef hann ætlar að fara í einhverja vitleysu get ég alltaf farið að lesa um uppsetningu á file serverum…

Rör í eyru…

Og samkvæmt því sem læknirinn segir þurfa þau börn sem fá rör einu sinni að meðaltali að fá rör þrisvar.  Karitas var ekki sátt þegar hún vaknaði úr svæfingunni en það er alveg með ólíkindum hvað hún er búin að vera róleg síðan um tíuleytið, aðgerðin var klukkan átta.  Nú steinsefur hún úti í vagni fyrir utan hjá ömmu sinni og afa og virðist bara vera jafn hress og hún á að sér að vera.  Dagmamma á morgun eins og ekkert sé!

Og það er snilld að vinna við eitthvað sem er hægt að gera að talsverðu leyti að heiman í gegn um netið…

Næsta Linux mál :)

Þar sem uppsetningin á Xubuntu á fartölvunni flokkast undir stórt “success” er komið að næsta atriði, setja upp Ubuntu server á gamalli SuSE Linux vél sem ég á niðri í geymslu.  Hún á að vera fileserver (þegar ég er búinn að fá í hana nýjan disk) og hýsa netsíðu(r).  Fyrir utan að vera rosalega gaman og spara peninga (losna við að borga fyrir heimasíðupláss) þá verður þetta líka gott tækifæri til að æfa mig í allskonar öryggisatriðum sem skipta miklu máli með servera.  Ætlunin er að hann verði álíka öruggur og Fort Knox!

Ef einhver hefur áhuga…

Fyrst ég get ekki sett inn javascript hér (eða nánar til tekið þá nennti ég ekki að finna út úr því fyrst allra fyrsta tilraunin gekk ekki, auðvitað hlýtur það að vera hægt) þá sést ekki niðurtalningin á Ubuntumerkinu hér til hliðar en svo það komi fram þá eru núna 14 dagar þangað til Ubuntu 9.10 kemur út.  Og eins og alltaf með (nánast allar útgáfur af) Linux þá kostar það ekki krónu þrátt fyrir að vera besta stýrikerfi í heimi.  Snilld!

Fjör með nýja dótið!

Bara núna í kvöld er ég búinn að breyta því hvernig harða diskinum á gömlu fartölvunni minni er skipt upp á milli þriggja stýrikerfa (til að gefa Xubuntu meira pláss, Windows hafði ekkert við það að gera), setja upp Java Development Kit (til að geta skrifað Java forrit og sett inn forrit sem er dreift sem .jar skrám), vim, LaTeX og GNUplot, og byrja á html kóða fyrir heimasíðu.  Það er svo gaman að fikta í Linux að það er varla hægt að stoppa þegar maður er kominn af stað!  Svo er að sjá hvenær ég geri fyrstu svakalegu mistökin sem setja allt í klessu.  Ætli sé ekki skemmtilegast að gera þau í C kóða svo þetta verði nú almennilegt klúður…

Bloggað úr Linux!

Þá er Xubuntu Linux komið upp á gömlu fartölvunni, eins og gefur að skilja er þessi færsla skrifuð þaðan.  Það tók innan við korter að koma stýrikerfinu upp sem “triple boot” (á móti Windows XP og SuSE Linux) og ekki mínútu frá fyrsta starti í nýju stýrikerfi að koma þráðlausa netkortinu í gagnið og inn á þráðlausa netið í íbúðinni!  Segi menn svo að Linux sé ekki notendavænt!  Það er raunar alveg rosalegur munur þegar maður notar þessar allra nýjustu Ubuntu (Xubuntu, Kubuntu…) útgáfur samanborið við eldri útgáfur sem ég hef prófað.  Í Ubuntu virðist nefnilega hafa tekist að halda öllu aflinu og örygginu sem Linux er frægt fyrir en gera viðmótið (sérstaklega í installeringunni) mjög þægilegt og augljóst.  Það eina sem maður þarf að passa er að leyfa ekki nýja stýrikerfinu að eyða öllu sem fyrir er á diskinum (nema það sé ætlunin auðvitað) og það er gert alveg augljóst hvað þarf að gera til að koma í veg fyrir svoleiðis klúður.  Nú fær gamla tölvan alveg nýtt líf því Linux er þeirrar náttúru að það þarf ekki gríðarlegt afl til þess eins að keyra sjálft sig (eins og Windows og Mac OS) heldur getur það látið sér duga nánast hvaða skrapatól sem er.  Þá er auðvitað meira afl eftir fyrir forritin sem ætlunin var að keyra.

Linux er snilld!

Staðreynd:  Þann dag sem framleiðendur tölvuleikja ákveða að nýir leikir verði í boði fyrir Linux frá byrjun mun Microsoft fara niður í logum.  Með aumingjalegu væli sem öllum verður sama um.  Og að því sögðu þá er ég núna að plana uppsetningu á Ubuntu Linux á tölvunni heima (dual boot, eins og ég sagði þá eru tölvuleikirnir mikilvægir…), gömlu fartölvunni minni (líka dual boot, skipti út SuSE Linux fyrir Xubuntu sem er mun léttari útgáfa af Ubuntu) og langar alveg svakalega að færa vinnutölvuna alveg yfir í Linux.  Það eru engir leikir að þvælast fyrir á henni…