Ég veit að ég sannfæri kannski ekki marga með því að halda því fram í bloggfærslu að það sé fullkomlega eðlilegt að sitja við fram á nótt og skrifa HTML kóða í vim (besti editor í heimi, Emacs er drasl
) en ég ætla að gera það samt. Að vísu er tímasetningin tilkomin af augljósum ástæðum (það er mun auðveldara að koma svona hlutum í verk með Karitas sofandi) en það að vera að þessu, sama hvenær er sólarhringsins, kemur mörgum undarlega fyrir sjónir. En þetta er bara svo gaman! Nú er ég að bæta inn myndum (parturinn sem ég geymdi þangað til síðast því af öllu sem hefur með tölvur að gera kann ég einna minnst í því að fara með myndir) og þegar það er komið, hvenær sem það nú verður, er stutt í að síðan geti farið í loftið. Ég mun að sjálfsögðu linka á hana héðan og tilkynna með miklum fanfare…
Category Archives: HTML
Snjallur…
Sumt getur látið mann efast alvarlega um eigið gáfnafar. Til dæmis þegar maður vaknar hálf sjö (og ég slapp vel, Guðný mátti sætta sig við að vakna hálf sex!) af því að Karitas er að brýna raustina og ætlar ekki að fara aftur að sofa (og það má í sjálfu sér alltaf búast við að hún geri þetta við og við) þá virkar það ekki mjög gáfulegt eftir á að hyggja að hafa skrifað HTML kóða til hálf þrjú.
Matseðillinn í dag mun samanstanda af kaffi, kóki, súkkulaði, kóki, kaffi, kóki og svo smá kóki.
Éld að sé ekk í lagi memmig…
Getur einhver sagt mér hvað ég er að hugsa, að vera ennþá að skrifa html kóða upp úr eitt þegar er á hreinu að Karitas verður voknuð fyrir átta. Og við erum tvö ein heima…