Fyrst ég er allt í einu staddur í Köben aftur þá er víst rétt að láta heyra í sér
Nú fer þó ferðunum hingað að fækka því í gær kom að því sem stefnt var að í tvö og hálft ár, ég kláraði mastersnámið mitt. Á morgun komum við Guðný aftur til Íslands (ef það verður þá ekki ófært!) og þá er bara að finna sér vinnu og koma sér betur og betur fyrir í nýju íbúðinni. Og svo þarf ég víst að fara að æfa mig
Category Archives: Skóli
Syntax error – writer out of order… testing… testing…
Ahemm. Það er víst rétt að láta aðeins heyra í sér hér eftir laaaaaaaaaaaaangt hlé. Það á sér svosem skýringu, aðallega þá að ég hef verið á fullu að skrifa ritgerð undanfarnar margar vikur með smá hléi til að flytja milli landa! Nú er (að því gefnu að flugið mitt verði á áætlun) einn sólarhringur þar til ég lendi á Íslandi, hvar ég var síðast 7. janúar, og þar með lýkur (næstum því) minni námsdvöl í Danmörku. Ég á eftir að klára ritgerðina og senda hana og svo þarf ég að koma aftur hingað í janúar til að halda um hana fyrirlestur. Í millitíðinni munum við Guðný svo koma okkur fyrir í íbúðinni sem við vorum að kaupa! Eftir það verður bara að koma í ljós hvað ég geri. Það er hins vegar ekki víst að bloggfærslurnar verði mikið fleiri því eins og ég hef áður tekið fram þá hefur það einhvernveginn alltaf viljað farast fyrir að blogga á Íslandi. Síðunni var komið upp til þess að ég gæti haldið smá sambandi við fólk frá Danmörku og þegar ég er ekki lengur þar þá er ekki víst að ég telji nokkra þörf á að halda þessu röfli mínu áfram. En við sjáum til, kannski fæ ég einhvern stórkostlegan innblástur uppi á Klaka:)
Einn ég sit og bölva…
Makkadrasl…
Einn ég sit og tölva…
Það er raunar ekki alveg satt, ég held að það sé einn annar í húsinu. Það er alltaf gott fyrir sjálfsálitið að vera að vinna á tímum sem enginn annar er að vinna á, þá er eins og maður sé rosalega duglegur. Sem er jú nauðsynlegt…
Eilíft sírenuvæl!
Það er dálítið merkilegt að sitja við heilu dagana í Rockefeller byggingunni þar sem DARK er til húsa, draugarnir á Riget eru nefnilega næstu nágrannarnir! Það þýðir að það líða varla tíu mínútur án þess að hér glymji sírenuvæl um allt sem er mjög truflandi fyrst, þótt það venjist nú fljótt. En það þykir það flestum vel viðeigandi að sú bygging spítalans sem liggur allra næst Rockefeller (þar sem KU geymir alla stjarneðlisfræðingana sína) er geðdeildin…
Þetta mjakast alltaf áfram…
Þá er búið að setja óformlegt “deadline” á verkefnið mitt, skil í lok október. Ég hef smá tíma í viðbót til að reyna að bæta kjöti á beinin áður en ég verð að stoppa og byrja að skrifa. Nú er að sjá hvort ekki dúkkar upp einhver stórfengleg uppgötvun sem snýr heiminum á hvolf á allra næstu vikum…
Mig langar í kók…
Algerlega nauðsynlegt þegar maður situr tímunum saman í herbergi með sex tölvum og stórum server og er að reyna að halda einbeitingu við að greina yfir 200 gammablossa.
Tölvitölvitölvi…
Mig verkjar í handleggina…
Það er góð tilfinning að ná loksins áföngum sem er búið að eltast við lengi
Í þetta skiptið er til gild afsökun fyrir því að ég hef ekki sést á blogginu í óratíma: Ég hef verið að hamast í verkefninu mínu. Nú er loksins tímafrekasti parturinn búinn og meira að segja komnar nothæfar niðurstöður sem eru þess virði að skrifa um. Planið er nú samt að reyna að halda áfram til að hafa meira kjöt á beinagrindinni. Eins og lesendur geta sjálfsagt getið sér til um þá var mjög skemmtilegt að setjast niður í morgun og byrja loksins á nýjum parti. Ég var orðinn dálítið þreyttur á því sem ég var að gera…
Nei! Eruð þið ennþá þarna?
Það er orðið svo langt síðan ég skrifaði síðast eitthvað hér að ég er búinn að gleyma öllu fréttnæmu sem kann að hafa gerst í millitíðinni. Það er náttúrlega ágæt leið til að koma sér hjá því að uppfæra síðuna, að gleyma öllu sem gerist, en því er ekki að neita að það gerir hana dálítið leiðinlega. Raunar hefur ekki verið mikil tilbreyting hjá mér undanfarna daga, ég hef reynt (með misgóðum árangri) að halda mér að verki í skólanum en því er ekki að neita að sól, logn og 25°C er ekki mjög pródúktívt veður. Það varð strax skárra þegar kólnaði skyndilega og þykknaði upp í lok vikunnar… Og svo hef ég notað hvert tækifæri til að dúmma mig í fótbolta en vil þó taka fram að margir liðsfélaga minna hafa dúmmað sig enn verr!
Þá eru gamlar fréttir frá og hægt að koma með nýjar (þótt ég hafi nú minnst á þær áður), sem sé að Hrefna er að koma í heimsókn á morgun (eða í dag, eftir því hvernig maður horfir á klukkuna) svo nú verður gaman! Og svo fer ég til Parísar (ha, hef ég gert það áður???) á fimmtudaginn!
Kominn aftur frá Noregi
Og það raunar fyrir tæpri viku núna… Það er alveg magnað hvað það getur verið ótrúlega erfitt að koma sér að því að skrifa á bloggsíðu þegar maður dettur út úr takti (svona takti eins og ég hélt í mars…), það verður svona “ég skrifa bara á morgun” viðhorf. Ferðin til Noregs var alveg ótrúlega skemmtileg eins og við var að búast, fyrir þá sem vilja lýsingu mæli ég með að lesa síðuna hjá Stefáni. Ég er síðan bara búinn að vera að vinna, og kaupa flugmiða til Parísar (einu sinni enn
).
Í dag er svo fótbolti á matseðlinum, ef Íslendingar geta ekki unnið Liechtenstein þá er eitthvað mjög alvarlegt að…
Nei, ég er ekki týndur í ormagöngum!
Undanfarna daga hef ég bara verið þaulsætinn fyrir framan tölvuna í einu af þessum óhjákvæmilegu “ég klára aldrei þetta verkefni” köstum og þá bloggar maður víst ekki mikið. Svo þegar maður áttar sig á því (eins og núna áðan) að þetta er mesti misskilningur og verkefnið stendur raunar bara ágætlega kemur að því að blogga aftur. Ég hef svo sem ekki gert mikið annað en að læra síðan síðast, ég spilaði þó fótboltaleik á sunnudaginn og má sjá skýrslu um hann á fótboltasíðunni. Þá dró til tíðinda í gærkvöldi þegar hópur starfsmanna og nema í Dark Cosmology Centre drifu sig út í Fælledparken sem er hér rétt hjá til að taka þátt í hlaupi til styrktar barnadeild “Riget” sem er okkar næsti nágranni (Böööööööööhhh!
). Það var mjög athyglisvert að sjá samsetninguna á þessum hóp. Það voru tveir Íslendingar (hlupum bæði 10 km), Pólverji (10 km), Ástrali (skráð í 10 km en hætti við á síðustu stundu vegna meiðsla), Kínverji (5 km), Brasilíumaður (5 km), Mexíkóbúi (5 km), Spánverji (5 km) og Dani (5 km)! Þess má geta að 40-50% Darkverja eru Danir en það hlutfall skilaði sér ekki alveg… Ennfremur kom það fram hjá kynninum áður en hlaupið var ræst að það væru þátttakendur frá átta löndum, við vorum einmitt með þátttakendur frá átta löndum! Hlaupið gekk bara vel, aðstæður voru raunar nokkuð íslenskar með u.þ.b. 10°C og talsverðan blástur og það þótti Darkverjum frá heitari löndum ekkert sérstaklega þægilegt en allir komust þó í mark ófrosnir og höfðu það af að komast í pizzuveislu í boði DARK eftir hlaupið. Ég gerði þau mistök að byrja allt of hratt og mátti því berja sjálfann mig áfram af tómri þrjósku í fulla 6 kílómetra en það dugði og ég kláraði á 46:34 sem er mínútu betri tími en í Reykjavíkurmaraþoni í sumar og þar með minn besti 10 km tími frá upphafi! Nú er bara að halda áfram að æfa sig…
Sól, sól skín á mig!
Eða það myndi hún gera ef ég væri ekki inni að hamast á tölvunni svo þetta mastersverkefni mitt verði nú einhverntíma búið. Er það alveg sér íslenskt fyrirbæri að vera alveg friðlaus innandyra um leið og kemur sól og hitinn fer upp fyrir 5°C?
Það er gaman að reyna að ráða í c-kóda…
Það hefur ýmislegt drifið á mína daga síðan ég kvartaði undan hryllilegum “tónlistar”smekk nágrannanna (og já ég drekkti dósajólalögunum í Wagner, ég fylgdi ráðleggingum Hildigunnar um styrkleika…), fyrst og fremst (og langskemmtilegast) var það að Guðný kom í heimsókn. Ég geri ekki ráð fyrir að nokkrum þyki undarlegt að ekki hafi verið mikið bloggað þá vikuna. Á laugardaginn var svo Stökuæfing (auk þess að ég rakst á tvær frænkur mínar á götuhorni!) og um kvöldið sungum við fyrir fulla Íslendinga á hóteli hér í borg. Svo var ég mjög menningarlegur á sunnudaginn og fór á tónleika með kórunum Musica Ficta og Tallis Scholars! Það var frekar flott verð ég að viðurkenna, ég held meira að segja að þau séu betri en við:) Í gærkvöldi var svo haldið áfram að vera menningarlegur með því að fara að sjá James Bond. Myndin er snilld. Farið að sjá hana.
Og nú sit ég og reyni að fá einhvern botn í það hvað forritið xrtmkarf.c (ekki reyna að bera þetta fram!) gerir. Og til þess þarf að lesa allan kódann. Og hann er torf…
Ég hlakka til!
Í dag eru tvær vikur þar til ég fer til Parísar:) Ég er búinn að telja niður frá því ég pantaði farið og er orðinn frekar spenntur! Meðal þeirra staða sem stendur til að heimsækja eru górillusýning á Champs Élysses (hvernig sem á nú að skrifa það…) og thaílenskur veitingastaður sem selur sæskrímslasúpu.
Af verkefninu er það að frétta að ég er að verða búinn að læra á forritið sem ég þarf að nota en hef þurft að gera allt í minni tölvu hingað til því tölvurnar í vinnuherberginu sem ég hef aðstöðu í eru í svo algjöru rugli að það er ekki einusinni hægt að logga sig inn. Þetta hefst upp úr því að nota Machintosh í alvöru tölvuvinnu…
Áfram Linux!
Eg hefi unnið frækinn sigur!
Eftir þriggja daga baráttu hefur mér tekist að setja upp á tölvunni minni allt það skemmtilega dót sem þarf til að fá einhvern botn í mæligögn frá Swift gervitunglinu, hvers hlutverk það er að nema gammablossa og fylgjast með þeim af mikilli nákvæmni. Þetta kostaði mikið brölt í Linux, loggaður inn sem root, en það getur haft afar skrautlegar afleiðingar ef maður gerir eitthvað vitlaust. Það gerði ég ekki svo tölvan mín er enn á lífi! Til dæmis skrifaði ég ekki rm -rf neðst í filesysteminu eins og ákveðinn íslenskur stjarneðlisfræðingur afrekaði fyrir nokkrum árum…
Sko mig!
Nú get ég virkilega verið góður með mig (á nördalegan hátt!). Ég er kominn með alvöru mastersnemavinnuaðstöðu og á skrifborðinu mínu eru ekki ein heldur tvær tölvur! Nú get ég þóst vera alvöru hakker (eins og í bíó) sem hamrar á lyklaborð á ofsahraða á meðan þrívíddarmyndir gerðar í Mathematica snúast á mörgum skjám í einu! Og svo opnast allt í einu systemið sem verið er að hakka og við það renna allar þrívíddarmyndirnar saman í eina heild. Hollywood hefur aldrei verið þekkt fyrir mikla nákvæmni…
Þar kom að því
Jæja, þá er Guðný komin til Parísar eftir að hafa rifið sig upp klukkan fjögur í morgun til að ná leigubílnum sem var pantaður í gærkvöldi. Það þarf ekki að taka það fram að þegar ég kom aftur frá flugvellinum (þá var klukkan hálf sjö!) fór ég aftur að sofa. Og svaf lengi…
Í dag talaði ég svo við leiðbeinandann um mastersverkefnið og mér sýnist að það geti verið komið í fullan gang í næstu viku, um leið og er búið að skipuleggja hluti eins og vinnuaðstöðu. Þetta verður svakalega spennandi:)
Svo þyrfti ég að fara að ganga í það að koma dótinu mínu fyrir í íbúðinni (fyrir þá sem ekki vita þá er ég fluttur frá Albertslund í íbúðina hennar Guðnýar á Øresundskollegíinu á Amager. Einhver verður að passa húsið á meðan hún er í París:)) en það er allt í kössum í bili. Ég held samt að ég æfi mig fyrst. Og svo verður kominn matur. Og svo þarf ég að lesa grein. Þetta á eftir að taka laaaaaangan tíma:-S
Að skjóta spörfugla með fallbyssu.
Þegar maður notar allt of stórtækar og þunglamalegar aðferðir við að leysa einföld verkefni er manni stundum bent á að nú sé verið að skjóta spörfugla með fallbyssu. Í gær var hér leyst einfalt verkefni með aðferð sem svarar til þess að veiða fiðrildi með kjarnorkusprengju. Þetta ætti a.m.k. að vera traust.
Á fimmtudaginn fer ég að hitta Dr. Watson! Leiðbeinandinn minn í mastersverkefninu heitir þessu stórskemmtilega nafni. Ég er að hugsa um að fara á bókasafn og fá Sherlock Holmes lánaðan…
Og svo er fyrsta Köku…, nei ég meina Stöku æfingin í kvöld. Það stóð í emailinum að það yrði kaka:)
Ammli!:)
Ég á ammælí dag, ég á ammælí dag…
Fyrir hálfum þriðja áratug og einu ári betur fæddist mathákur með mikinn hárlubba. Ég er ennþá mathákur og þið ættuð sko bara að sjá hárið núna…
Og hér sit ég og læri fyrir próf í “The Interstellar Medium and Star Formation”! Gríðarlega spennandi:)
Og því lauk…
Þetta próf kláraðist eins og önnur, nú er bara að lesa fyrir það síðasta (27. júní, glæpsamlega seint!) og vona að vejleder líki verkefnið sem ég var að senda honum. Mig langar ekki að fá það allt í hausinn aftur, allt í lagi að þurfa aðeins að laga en ekki að endurskrifa helminginn!
PRÓF!
Á morgun, um 14:30 samkvæmt áætlun sem aldrei stenst vegna afstæðilegs tímasamdráttar, mun ég taka munnlegt próf í ýmiskonar skammtastuði svo sem hvernig maður smíðar skammtatölvur sem eru ekki til, hvernig skammtaafritarar sem eru heldur ekki til (og geta ekki verið til, ólíkt tölvunum) þyrftu að virka svo hægt væri að hafa gagn af þeim og Quantum Teleportation sem er Star Trek sloppið út! Það eru fjórir gíraffar undir borðinu, fimm krókódílar í sturtunni og fíll undir rúmi auk þess sem ég var að veiða ljón í helming af skammtaástandi psi+ þar sem það brýst núna um og reynir að losa sig úr flækjunni. Svo framkvæmi ég Bell mælingu á öllu saman, hringi upp í dýragarð (þar sem ég geymdi hinn helminginn af ástandinu), segi þeim niðurstöðuna og þá eru þeir komnir með ljónið (samkvæmt nótunum mínum a.m.k.).
Ég er feginn að þetta skuli (sennilega) vera næst síðasta próf sem ég þarf að taka á mínum námsferli:Þ
Science fiction próf!
Ég sit hér og læri fyrir próf í Quantum Optics and Quantum Information með smá aðstoð frá Anton Bruckner (4. sinfónían, flutt af Berliner Philharmoniker með Eugen Jochum að stjórna. Algjör snilld!). Meðal þeirra hluta sem ég þarf að geta útskýrt á prófinu eru skammtatölvur (sem n.b. eru eiginlega ekki til ennþá) og fyrirbærið Quantum Teleportation sem virðist helst eiga heima í Star Trek (Beam me up Scotty!)! Ég er feginn að hafa ekki farið í klippingu nýlega, maður verður að líta út eins og brjálaður uppfinningamaður til að vera sannfærandi þegar svona hlutir eru ræddir. Eða er það ekki annars?
Mmmmmmmm, pizza í kvöld:P
Mastersverkefni!
Ég var að velja mér mastersverkefni, eða réttara sagt þá kom frábært mastersverkefni upp í hendurnar á mér. Næsti vetur verður því gammablossastuð á DARK þar sem ég mun örugglega gera nýja ódauðlega uppgötvun í hverri viku:) ÉG HLAKKA TIL!!!
Stopp!
Það er aldrei gott þegar verkefni sem nálgast lokafrest (þó enn sé nú svo sem nægur tími, engin þörf á að panika:)) eru stopp af einhverjum ástæðum. Það er samt alveg ótrúlegt hvað manni líður alltaf mikið betur með það ef það er eitthvað annað en manns eigin seinagangur, leti eða almenn vandræði með að kveikja á perunni sem heldur aftur af öllu saman, til dæmis seinagangur annarra eða það að ekki næst í þá sem þurfa að líta á verkefnið áður en haldið er áfram. Miklu betra upp á samviskuna.
Það er merkilegt hvað fjórir mánuðir geta verið stuttir…
Uppstigningardagur
Og þrátt fyrir það var alveg ótrúlega erfitt að stíga upp úr rúminu í morgun (hrjót…). Ekkert að gerast nema verkefni, verkefni, verkefni og svo smá verkefni. Ég verð svakalega feginn þegar það loksins klárast, það get ég sagt ykkur.
Tadaaaa!
Hér er ég! Hélduð þið kannski að ég væri hættur? Aldeilis ekki, ég tók mér bara bloggpásu sem varð rúm vika áður en yfir lauk. Ástæðan var kannski aðallega sú að það var alltaf nokkurn veginn það sama að gerast á hverjum degi og í raun ekki neitt sérstaklega fréttnæmt.
Annars er það helst í fréttum að ég er í því að sitja við tölvurnar í skólanum og forrita þessa dagana, ég er að prófa gammablossalíkan sem á að útskýra af hverju sumir þeirra skjóta röntgengeislum eftir gammablossann sjálfan. Eins og þið getið ímyndað ykkur þá hef ég séð dálítið af orðunum “syntax error” undanfarið (Grrrrrrrrr! Reyta hár!). Enn hafa þó engin slys orðið á fólki né tölvubúnaði.
Ha, skóli?
Blokk fjögur byrjar í dag og allt í einu þarf ég að fara að mæta í skólann aftur eftir fjögurra vikna afslöppun (lesist: LETI). Ég ætla að taka kúrs um stjörnumyndun og svo er ég raunar enn að velta fyrir mér hvort ég ætla að taka kúrs um plánetueðlisfræði eða um “Quantum Optics and Quantum Information”. Ég ætla að kíkja á þennan kvantakúrs í dag og sjá hvernig mér líst á. Ef hann er spennandi þá tek ég hann frekar, ég held að hann sé meiri “alvöru” masterskúrs, það gæti verið vesen að fá hinn samþykktan. Það er ekki útilokað að þetta verði síðustu tveir kúrsarnir sem ég tek, eftir þetta verða kannski bara rannsóknarverkefni!
Ég er að verða galinn af golfskorti, hef ekki komist ennþá en það fer að styttast í að ég drífi mig bara hvort sem ég kemst eða ekki:P FORE!!!
Ekkert golf í dag:(
Ég endaði á að fara ekkert í golf í dag, ég þurfti eiginlega að gera meira í verkefninu mínu og svo var rigning. Þið megið alveg ráða hvora ástæðuna þið teljið hafa haft meiri áhrif en lokaniðurstaðan er sú sama. Það styttist þó óðum í að hafnar verði barsmíðar ægilegar, mér til skemmtunar og golfboltunum mínum til skelfingar! Bwahahahahahaha!!!!!
Ég hlakka til á morgun…
Páskafrí!
Ég er kominn í fjögurra vikna langt páskafrí eftir að kúrsinn sem ég tók í blokk 3 kláraðist í gær. Honum lauk með því að nemendur kynntu hópverkefni sem voru unnin síðustu tvær vikurnar og eftir það fékk ég að vita að ég hefði fengið “bestået” (eins og raunar allir hinir). Hina mögulegu einkunnina getið þið sennilega giskað á. Svo nú skal skrifað um gammablossa, forritað í C, orkestrerað, sungið og þeyttur lúður næstu vikurnar!